Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Hann felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.
Samkvæmt lögum um tekjuskatt skal fjárhæð persónuafsláttar taka breytingu út frá margfeldi breytingar vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði og hlutfalls nýrrar grunnprósentu tekjuskatts einstaklinga af grunnprósentu ársins áður, að útsvarsprósentu meðtalinni. Þá skulu þrepamörk tekjuskatts vera uppreiknuð í hlutfalli við hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.
Á grundvelli þess eru skatthlutföll og þrepamörk árið 2021 eftirfarandi.
Prósenta í 1. þrepi (af tekjum 0 - 349.018 kr.): 31,45% (þar af 14,45% útsvar)
Prósenta í 2. þrepi (af tekjum 349.019 - 979.847 kr.): 37,95% (þar af 14,45% útsvar)
Prósenta í 3. þrepi (af tekjum yfir 979.847 kr.): 46,25% (þar af 14,45% útsvar)
Skatthlutfall barna (fædd 2006 eða síðar) af tekjum umfram 180.000 kr. á ári. 6%
Persónuafsláttur á mánuði kr. 50.792
Persónuafsláttur á ári kr. 609.509
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 168.230 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Skattleysismörkin voru 162.398 kr. á mánuði árið 2020 og því er hækkun skattleysismarka 3,6% sem er í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs.
Tryggingagjald
Í ársbyrjun 2021 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds lækka um 0,25 prósentustig, úr 4,9% í 4,65%. Er sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar. Tryggingagjald í heild lækkar úr 6,35% í 6,10%.
Sjá nánar í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins og á vefsíðu Skattsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |