Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:33 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:33 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:33 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:33 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:33 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:33 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna opna í dag og verða opnir alla daga til áramóta. Til stóð að fækka leyfilegum söludögum flugelda milli jóla og nýárs þannig að salan hæfist ekki fyrr en 29. desember. Frá því var horfið vegna kórónuveirufaraldursins svo að sölustaðir yrðu ekki fullir af fólki með tilheyrandi smithættu. Björgunarsveitin Húnar í Húnaþingi vestra opna flugeldamarkað sinn í dag klukkan 17 en sveitin býður einnig upp á vefverslun sem opin er allan sólarhringinn.
Opnunartími flugeldamarkaðarins í Húnabúð á Hvammstanga er þessi:
Mánudagurinn 28. desember klukkan 17-21
Þriðjudagurinn 29. desember klukkan 13-21
Miðvikudagurinn 30. desember klukkan 10-22
Gamlársdagur 31. desember klukkan 9-16
Vefverslun Húna er á slóðinni hunar.flugeldar.is. Þar er hægt að versla heima í stofu og eru pantanir afgreiddar á opnunartíma flugeldamarkaðarins í Húnabúð. Í vefversluninni er hægt að skoða vöruúrvalið af flugeldum sem í boði eru.
Engin áramótabrenna verður á Hvammstanga að þessu sinni vegna samkomutakmarkana. Stefnt er að því að halda flugeldasýningu á gamlárskvöld klukkan 21. Skotið verður upp frá norðurgarði Hvammstangahafnar svo hægt verði að njóta sýningarinnar úr fjarlægð. Íbúar á Hvammstanga eru hvattir til að njóta flugeldasýningarinnar heiman frá sér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |