Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:23 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:23 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:23 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:23 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:23 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:23 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Dalabyggð hefur óskað eftir umsögn Húnaþings vestra við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 vegna vindorkuvers í landi Sólheima, við sveitarfélagsmörk að Húnaþingi vestra. Skipulags- og umhverfisráð Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum 7. desember síðastliðinn að óska eftir frekari gögnum til að geta átt faglegt samráð við íbúa Húnaþings vestra og upplýstrar ákvörðunartöku um efnistök umsagnar. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
Í aðalatriðum felst breytingin í því að 400 ha iðnaðarsvæði til vindorkunýtingar er fært inn í aðalskipulag, á svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi.
Iðnaðarsvæðið í landi Sólheima gerir ráð fyrir uppbyggingu á vindorkuveri með allt að 30 vindmyllum til raforkuframleiðslu allt að 150MW. Í greinargerð tillögunnar er áformað að vindmyllur verði 120m upp í miðju hverfils og spaðar í hæstu stöðu í 200m hæð. Hugsanlega þarf að gera ráð fyrir ljósabúnaði efst á myllum, til aðvörunar fyrir flugumferð. Áformað er að selja raforkuna inn á kerfi Landsnets.
Í tillögunni er umhverfisskýrsla þar sem fjallað er um umhverfisþætti, matsspurningar og viðmið, ásamt samanburði valkosta og umfjöllun um mótvægisaðgerðir. Orkuvinnslusvæðið liggur innan svæðis sem Náttúrufræðistofnun gerir tillögu um að vernda, sem mikilvægt svæði fyrir fuglalíf og líffræðilegan fjölbreytnileika, afmarkað sem mikilvægt varpsvæði á alþjóðavísu fyrir himbrima og álft. Þjónustuvegir/-slóðar verða lagðir á svæðinu.
Íbúar Húnaþings vestra geta komið sjónarmiðum og/eða athugasemdum til skrifstofu Húnaþings vestra á netfangið skrifstofa@hunathing.is, merkt „Vindorka_Dalabyggð“ eins er hægt að senda athugasemdir beint til Dalabyggðar á netfangið skipulag@dalir.is. Athugasemdafrestur er til 20. janúar 2021.
Sjá nánari upplýsingar um málið á vef Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |