Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:01 0 0°C
Laxárdalsh. 05:01 0 0°C
Vatnsskarð 05:01 0 0°C
Þverárfjall 05:01 0 0°C
Kjalarnes 05:01 0 0°C
Hafnarfjall 05:01 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 04. janúar 2021 - kl. 14:04
Rúmum 75 milljónum úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra hefur tilkynnt um úthlutanir úr sjóðnum fyrir árið 2021. Í október var auglýst eftir umsóknum á sviði menningar og atvinnuþróunar og nýsköpunar með umsóknarfresti til 16. nóvember. Alls bárust 123 umsóknir þar sem óskað var eftir 228 milljónum króna. Við tók yfirferð úthlutunarnefndar og fagráða sjóðsins og lauk því 22. desember síðastliðinn er niðurstöður voru sendar til umsækjenda. Sagt er frá þessu á vef SSNV.is.

Alls fengu 69 umsóknir brautargengi samtals að fjárhæð rúmar 75 milljónir króna. Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar fengu 28 umsóknir styrk samtals að fjárhæð rúmar 37 milljónir og á sviði menningar var samþykkt að styrkja 41 umsókn með rúmum 38 milljónum. Vegna covid-19 verðu ekki haldin úthlutunarhátíð að þessu sinni.

Fjármagn Uppbyggingarsjóðsins er hluti af samningi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við stjórnvöld um framkvæmd Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2020-2024.

Styrkhafar eru (í stafrófsröð):

Aðalheiður S. Böðvarsdóttir. Fjarvinnusetur að Reykjaskóla í Hrútafirði - 715.000 kr.
Árni Rúnar Örvarsson. Verðmætaaukning íslensks æðardúns - 1.116.000 kr.
Blönduósbær. Húnavaka Blönduósi - 400.000 kr.  
Blönduóskirkja. Tónleikaröð 2021 í Blönduóskirkju - 400.000 kr.
Brjálaða gimbrin ehf. Ærkjöt betri nýting -  1.113.500 kr.
Brjálaða gimbrin ehf . Hæverski hrúturinn -  1.770.000 kr.
Búminjasafnið Lindabæ. Stofn- og rekstrarstyrkur - 600.000 kr.
Digital horse ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur - 700.000 kr.
Embla Dóra Björnsdóttir. Fíflarót – allra meina bót - 967.500 kr.
Extis ehf. Vöruþróun – CMS hugbúnaður - 915.000 kr.
Extis ehf. Sprotafyrirtæki í markaðssókn - 860.000 kr.
Ferðamálasamtök Norðurlands vestra. Markaðssókn (söfn, setur o.fl.) - 1.450.000 kr.
Félag eldri borgara Húnaþingi vestra. Vor- og jólatónleikar 2021 - 300.000 kr.
Félag eldri borgara Skagafirði. Sönghópur FEB í Skagafirði - 300.000 kr.
GB Trading ehf. Gestastofa sútarans-heimasíða/netverslun - 743.750 kr.
Handbendi Brúðuleikhús ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur -  1.000.000 kr.                   
Hvst. International Puppetry Festival 2021 -  1.500.000 kr.
Hátæknisetur Íslands ses. Nýsköpunarklasi í Skagafirði - 500.000 kr.
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi ses. Stofn- og rekstrarstyrkur -  1.100.000 kr.
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi ses. Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins - 200.000 kr.
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi ses. Stofutónleikar Heimilisiðnaðarsafnsins - 200.000 kr.
Helga Rós Indriðadóttir. Eyþór og Lindin -  800.000 kr.
Helgi Sæmundur Guðmundsson. Norðvestur - 1.000.000 kr.
Helgi Sæmundur Guðmundsson. Hvað syngur - 400.000 kr.
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Margmiðlunarefni um sögu bæjar - 350.000 kr.
Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir. Þórdís – fyrsti Húnvetningurinn - 200.000 kr.
Ingveldur Ása Konráðsdóttir. Hólakot - 820.000 kr.
Jóhann Eymundur Rögnvaldsson - Gestastofa á Hrauni - 540.000 kr.
Kakalaskáli ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur - 2.200.000 kr.
Karlakórinn Heimir. Tónleikahald og útgáfa 2021 - 400.000 kr.
Karlakórinn Lóuþrælar. Vor- og jólatónleikar 2021 - 400.000 kr.
Karólína Elísabetardóttir. Hvammshlíðarostur -  1.169.150 kr.
Kvennakórinn Sóldís. Konur - 400.000 kr.
Lárus Ægir Guðmundsson. Kaupmennirnir á Skagaströnd 1586-2020 - 350.000 kr.
Léttitækni ehf.  Norðurplast -  1.000.000 kr.
Maður og kona ehf. Shoplifter í Hrútey (vinnuheiti) - 2.250.000 kr.
Magnús Björn Jónsson. Eins og rúllandi steinn - 350.000 kr.
María Eymundsdóttir. Ræktun á burnirót á Íslandi - 830.000 kr.
Menningarfélag Gránu - Viðburðaröð Menningarfélags Gránu - 800.000 kr.
Menningarfélagið Spákonuarfur ses. Stofn- og rekstrarstyrkur -  2.200.000 kr.
Nes listamiðstöð ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur - 1.100.000 kr.
Nes listamiðstöð ehf. Light Up 2022  -  1.500.000 kr.
Pure Natura ehf. Fullnýting í sauðfjárrækt - 1.400.000 kr.
Selasetur Íslands ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur - 2.000.000 kr.
Sigrún Helga Indriðadóttir. Úr dokku í djásn – geitafiða og sauðaband - 1.850.000 kr.
Sigurjón Þórðarson. Sjálfvirk seyrumæling í rotþróm - 815.000 kr.
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra. Skúnaskrall 2021 - 2.300.000 kr.
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. Fræðslumyndbönd - úrbeining og sögun - 1.058.220 kr.
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. Model for developing omega 3-oil prod.  - 1.104.500 kr.
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. Red algae as ingredients in solid skin care - 3.365.000 kr.
Skagfirski kammerkórinn. Bráðum kemur betri tíð - 400.000 kr.
Skotta ehf. Hágæða þáttaröð fyrir alþjóðlegt sjónvarp - 2.793.750 kr.
Stefanía Hjördís Leifsdóttir. Geita- og sauðaostar-vöruþróun og mark. - 2.650.000 kr.
Stóragerði ehf. (Samgönguminjasafn). Stofn- og rekstrarstyrkur - 2.200.000 kr.
Sveitarfélagið Skagafjörður. Matarkistan Skagafj. - stefnumótun og fl. - 2.442.200 kr.
Sýndarveruleiki ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur -  2.200.000 kr.
Sýndarveruleiki ehf. - Stafræn Sturlungaslóð í Skagafirði -  3.000.000 kr.
Sögufélag Skagfirðinga. Byggðasaga Skagafjarðar - 2.100.000 kr.
Sögusetur íslenska hestsins ses. Stofn- og rekstrarstyrkur - 1.500.000 kr.
Sögusetur íslenska hestsins ses. Íslenski hesturinn – þjóðarhesturinn - 500.000 kr.  
Unglist í Húnaþingi. Eldur í Húnaþingi 2021 - 750.000 kr.
Ungmennafélagið Grettir. Popp- og rokkkór Húnaþings vestra - 450.000 kr.
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga. Húnavökurit 2021 - 450.000 kr.
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga. Húni 42. árgangur - 400.000 kr.
Vatnsnes mengi og stök ehf. Skrúðvangur og týnda eldhúsið - 619.003 kr.
Vatnsnes Yarn ehf. Gerð kennsluefnis og útfl. nýrrar vöru -  879.000 kr.
Verslunarminjasafn á Hvammstanga ses. Stofn- og rekstrarstyrkur - 500.000 kr.
Viðburðaríkt ehf. Tónlistarhátíðin Drangey Music Festival - 1.000.000 kr.
Vilko ehf. Markaðssókn - 680.000 kr.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið