Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:51 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:51 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:51 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:51 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:51 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:51 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fræðslufundur ÖÍ - Öldrunarráðs Íslands og LEB - Landssambands eldri borgara, á RÚV.
Hverjar eru áskoranir eldri borgara og hvernig er hægt að eiga innihaldsríkt líf alla ævi?
Öldrunarráð Íslands og LEB - Landssamband eldri borgara standa fyrir fræðslufundinum, Velferð eldri borgara, á RÚV þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 13-15, þar sem víðtæk fræðsla og upplýsingamiðlun verður höfð að leiðarljósi.
ÖÍ hefur árlega staðið fyrir ráðstefnu um málefni sem varða eldri borgara. Á kórónuveirutímanum hefur ekki verið hægt að halda slíka ráðstefnu. En ÖÍ lét ekki fallast hendur heldur ákvað í samvinnu við LEB – Landssamband eldri borgara að finna leið til að ná til breiðs hóps þeirra sem eru komnir af léttasta skeiði,; hóps sem er orðinn fimmtungur þjóðarinnar og fer stækkandi.
Úr varð að halda fræðslufund í samstarfi við RÚV. Þar með gafst einstakt tækifæri til að tengjast eldri borgurum um allt land, þar sem samkomutakmörk og fjarlægðir setja engin takmörk. Það er von ÖÍ, LEB og RÚV að fræðslufundurinn nái til sem flestra eldri borgara og aðstandenda þeirra.Enda er dagskrá fræðslufundarins einstaklega fróðleg og áhugaverð.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flytur opnunarávarp. Fundarstjóri er Jórunn Frímannsdóttir, formaður Öldrunarráðs Íslands.
Fræðlufundurinn byggist upp á fjölbreyttum erindum fólks sem hefur látið málefni eldra fólks sig varða á ýmsum sviðum samfélagsins:
- Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar: Frá því að þörf skapast fyrir þjónustu - Þjónustukeðjan.
- Halldór S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri öldrunarheimila Akureyrar, dósent HÍ: Velferðartækni – tengsl og traust.
- Benedikt Jóhannesson, tryggingastærðfræðingur: Nýtum allar vinnufúsar hendur og heila.
- Sr. Bjarni Karlsson, sálgætir og siðfræðingur: Er elli innri maður?
- Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir, öldrunarlækningadeild Landspítala, prófessor í öldrunarlækningum, læknadeild Háskóla Íslands: Heilsufar á efri árum og umbætur í öldrunarþjónustu.
- Ólöf Guðný Geirsdóttir, næringarfræðingur og dósent HÍ: Matur og hreyfing – undirstaða heilbrigðis.
- Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB: Lifum lífinu lifandi.
Í lokin stýrir Jórunn Frímannsdóttir pallborðsumræðum með þeim Halldóri, Ólöfu Guðnýju, Pálma og Þórunni.
Verið stillt á RÚV þriðjudaginn 9. febrúar kl. 13.00 – 15.00!
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |