Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:38 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húnaklúbburinn í Húnaþingi vestra og félagsmiðstöðin Óríon á Hvammstanga hafa fengið Erasmus+ styrk vegna verkefnisins Leiðin að rótunum. Ungmennaráðin í Húnaþingi vestra og í Pyhtää í Finnlandi munu vinna saman að því að hvetja æskuna til aukinnar lýðræðisþátttöku, til að taka meiri þátt í að móta samfélög sín og búa ungmenni undir samskipti við stjórnvöld og aðra menningarheima í alþjóðlegu umhverfi. Verkefnið hlaut rúmlega 27 milljón króna styrk fyrir árin 2021 og 2022.
Æskulýðsleiðtogar frá Húnaþingi vestra og Pyhtää munu funda með innlendum og alþjóðlegum stefnumótendum auk heimamanna, til að kanna hvernig ungmenni sem búa í sveitarfélögum á landsbyggðinni geta haft forystu í samfélagsþróunarverkefnum sem hafa bein áhrif á líf þeirra. Húnaklúbburinn er náttúruskóli og klúbbur ungmenna í Húnaþingi vestra sem stofnaður var árið 2016 með forgöngu dr. Jessicu Aquino. Verkefni klúbbsins er að þróa staðbundna sjálfsmynd ungs fólks með umhverfisfræðslu í nærumhverfinu og auðvelda þannig framlag þeirra til sjálfbærrar þróunar samfélags síns. Til að fræðast frekar um Húnaklúbbinn heimsækið www.hunaklub.org.
Dr. Jessica Aquino er lektor við Háskólann á Hólum og deildarstjóri ferðamáladeildar Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Hún hefur næstum 20 ára reynslu af umhverfismenntun og hefur doktorsgráðu í samfélagsauðlindum og þróun. Jessica hefur áhuga á samfélagslegum þátttökuverkefnum með áherslu á valdeflingu ungmenna og ábyrga umgengni við dýralíf.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |