Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kormákur/Hvöt og fótboltafélagið Múrbrjótar hafa hlotið grasrótarverðlaun Knattspyrnusambands Íslands 2020. Kormákur/Hvöt fær verðlaunin fyrir öflugt knattspyrnustarf fyrir börn og fullorðna og Múrbrjótar vegna verkefnisins Fótbolti án fordóma. Félögin Kormákur frá Hvammstanga og Hvöt frá Blönduósi hafa um nokkurra ára skeið átt í farsælu samstarfi í yngri flokkum drengja og stúlkna og meistaraflokki karla.
Dæmi um ágæti þessa samstarfs er að sumarið 2020 sendi Kormákur/Hvöt lið til keppni í 11 manna bolta í 3. flokki karla, 8 manna bolta í 4. flokki kvenna og A og B lið til keppni í bæði 5. flokki karla og 5. flokki kvenna. „Íþróttaþátttaka á báðum þessum stöðum er til mikillar fyrirmyndar og þar spilar þátttaka í knattspyrnu stærsta hlutverkið,“ segir á vef KSÍ.
Þar segir einnig að þegar Siguróli Kristjánsson heimsótti Blönduós á síðasta ári í átakinu “Komdu í fótbolta með Mola”, hafði hann orð á því að krafturinn og jákvæðnin í öllum sem að heimsókninni komu, ekki síst foreldrum og sjálfboðaliðum, hafi verið einstaklega minnisstæð og til eftirbreytni.
„Kormákur/Hvöt er dæmi um gott samstarf tveggja félaga úr minni bæjarfélögum, sem láta fjarlægð ekki hindra sig í að halda úti öflugu knattspyrnustarfi fyrir börn og fullorðna og KSÍ telur þessi félög vel að Grasrótarverðlaunum komin.“
Sjá nánari umfjöllun á vef KSÍ.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |