Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:49 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:49 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:49 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:49 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:49 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:49 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Aðalfundur Félags kúabænda í Austur-Húnavatnssýslu var haldinn 18. febrúar síðastliðinn í sal Búnaðarsambandsins. Venjuleg aðalfundarstörf, verðlaunaafhending og erindi gesta voru á fundinum. Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri LK mætti á fundinn og var með erindi um nýtt félagskerfi og fleira. Auður Ingimundardóttir hjá RML var með erindi upp úr skýrsluhaldinu á landsvísu.
Formannaskipti urðu í félaginu og lét Linda Björk Ævarsdóttir Steinnýjarstöðum af störfum og Ingvar Björnsson Hólabaki tók við.
Stjórn félagsins skipa þá:
Ingibjörg Sigurðardóttir Auðólfsstöðum
Maríanna Ragnarsdóttir Hnjúki
Magnús Björnsson Syðra hóli
Sigurður Magnússon Hnjúki
Varamenn:
Ólafur Kristjánsson Höskuldsstöðum
Þorsteinn Jóhannsson Auðólfsstöðum
Verðlaun voru veitt fyrir árið 2019 sem veita átti á uppskeruhátíð bænda síðastliðið haust sem var felld niður.
Eftirfarandi hlutu verðlaunin.
ÞYNGSTA NAUTIÐ
- Eiður Magnússon Miðhúsum. 394,1 kg UN R+ 3-
- Huppa ehf Höskuldsstöðum. 359,7 kg UN O+ 3-
- Rafn Sigurbjörnsson Örlygstöðum. 357,3 kg UN O 3+
HÆST DÆMDA KÝRIN
- Glóð 0453 á Hólabaki 94,2 stig
- Agga 0421 á Hólabaki 93,2 stig
- Ró 0620 á Steinnýjarstöðum 92,9 stig
Faðir Glóð 453 er 0399 sem er undan Sand 07014 og móðurfaðir er Bambi 08049.
NYTHÆSTA KÝRIN
- 1445621-0150 Korna á Brúsastöðum 12.210 kg
- 0444 Flekka á Hnjúki 11.508 kg
- 1468481-0352 Heimskringla á Hnjúki 11.377 kg
Faðir Kornu 150 er Hræsingur 98046 og móðurfaðir er Þverteinn 97032
AFURÐAHÆSTA BÚIÐ
- Brúsastaðir – meðalnyt eftir 47,0 árskýr var 8.292 kg.
- Steinnýjarstaðir- meðalnyt eftir 47,2 árskýr er 7.260 kg
- Hnjúkur – meðalnyt eftir 59,8 árskýr er 7.193 kg.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |