Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:58 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:58 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:58 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:58 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:58 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:58 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðarráðs Blönduósbæjar, gagnrýnir Samkaup fyrir alltof hátt verðlag í Kjörbúinni á Blönduósi. Í pistli sem hann skrifar á facebooksíðu sína segir hann að íbúarnir tali saman og pirri sig á „þessu yfirgengilega og óréttláta verðlagi sem kemur hvað verst við barnmörg og stór heimili.“ Segist hann einnig ekki skilja af hverju íbúar á Blönduósi geti ekki keypt frábærar vörur SAH Afurða í Kjörbúðinni.
„Kjörbúðin Blönduósi er í eigu Samkaupa eins og Nettó. Samkaup segja markaðinn í A-hún of lítinn til að þau geti breytt verslun sinni hér í lágvöruverðs verslun eins og Nettó. Við erum bara um 1800 manns og það þarf fleiri til að lágvöruverðs verslun standi undir sér segja þau. Um Blönduós fara hátt í 700.000 bílar á ári og komur í sundlaugina okkar eru yfirleitt vel ríflega 40.000 á ári. En eru þeir ekki að gleyma öðrum breytum??? Hvað eru þeir að borga í leigu fyrir húsnæðið hér er það jafn mikið og á Glerártorgi og í Mjódd??,“ segir Guðmundur Haukur í pistli sínum. Hann bætir jafnframt við að ef lágvöruverslun myndi opna á Blönduósi, þá kæmu viðskiptavinir víða að úr allri sýslunni. Þannig mætti færa rök fyrir því að upptökusvæðið væri allt að 8.000 manns, þ.e. Norðurland vestra, plús ferðamenn.
Guðmundur Haukur nefnir einnig í pistli sínum að í gegnum tíðina hafi fólk á svæðinu reynt ýmislegt fyrir sér í verslun en allt drepið niður af Samkaup. Nefnir hann bakarí en þá hafi Samkaup opnað bökunarhorn í Kjörbúðinni. Fiskbúð var opnuð á Blönduósi, en þá hafi Samkaup aukið úrval af fiski í búðinni. Leikfangaverslun opnaði en þá hafi úrval af leikföngum aukist í búðinni og svo hafi opnað handverksbúð, en þá hafi allt í einu verið byrjað að selja ullarpeysur í Kjörbúðinni. „Það er allt drepið niður sem hægt er... og við hina er ekki verslað - framleiðendur í heimabyggð sem nota bene eru þeirra helstu viðskiptavinir,“ segir Guðmundur Haukur og endar pistil sinn á því að hrósa starfsfólki Kjörbúðarinnar sem hann segir að sé frábært og þjónustulundað.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |