Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:59 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:59 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:59 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:59 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:59 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:59 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi var haldinn á Blönduósi í gær 21.4.2021. Fundarstörf voru með hefðbundnum hætti með tilheyrandi Covid sóttvarnir að leiðarljósi. Ásgerður Pálsdóttir var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára og Gréta Björnsdóttir og Ragnheiður Þorsteinsdóttir voru endurkjörnar í aðalstjórn til tveggja ára.
Ferðanefnd var kosin til eins árs. Hana skipa: Sigrún Grímsdóttir, Kolbrún Zophoníasdóttir, Magnús Ólafsson, Bóthildur Halldórsdóttir og Ágúst Sigurðsson. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu hefur starf félagsins legið að mestu niðri síðasta ár en vonandi fer að birta til í þeim efnum. Fullbókuð er ferð á Snæfellsnes í lok ágúst og og styttri ferðir í undirbúningi.
Þá var rætt um húsnæðisvanda bæði félagsins og félagsstarfs aldraðra og nauðsyn þess að koma þeim málum í betra horf. Tölvunámskeið fyrir eldri borgara verða haldin á vegum Farskólans og Arion banka nú á næstu vikum og verða nánar auglýst. Margt fleira var rætt s.s. málssókn Gráa hersins og áhersluatriði Landssambands eldri borgara ( LEB). Margrét Einarsdóttir kynnti ársreikning Sólhvamms.
Þá voru bornar fram góðar þakkir og bestu batakveðjur til Róberts Jónssonar, forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar og einnig kveðjur og þakkir til forsvarsmanna Blönduóssbæjar fyrir aðstöðu til heilsuræktar eldri borgara í Íþróttamiðstöðinni. Nú þarf að efla það starf öllum til hagsbóta, og kynna það vel. Félagsmenn eru nú rúmlega 130.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |