Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Mánudagur, 29. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:53 0 0°C
Laxárdalsh. 09:53 0 0°C
Vatnsskarð 09:53 0 0°C
Þverárfjall 09:53 0 0°C
Kjalarnes 09:53 0 0°C
Hafnarfjall 09:53 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 03. maí 2021 - kl. 13:34
Leitað að matarfrumkvöðlum og veitingastöðum til þátttöku í Matarboði Nýsköpunarvikunnar

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra leita að matarfrumkvöðlum og veitingastöðum sem hafa áhuga að taka þátt í Matarboði Nýsköpunarvikunnar. Matarboðið er samansafn viðburða sem eiga sér stað samhliða Nýsköpunarvikunni dagana 26. maí - 2. júní. Viðburðunum er ætlað að para saman matarfrumkvöðla við veitingaþjónustu og skapa einstaka matarupplifun fyrir gesti.

Matarboðið er vettvangur fyrir frumkvöðla og veitingastaði til að vinna saman, kynna sig, starfsemi sína og vörur ásamt því að varpa ljósi á hversu fjölbreytt og margbreytilegt íslenskt frumkvöðlastarf er orðið.

Hugmyndin að Matarboðinu felur í sér að bjóða veitingastað í samstarf við einn eða fleiri matarfrumkvöðla. Veitingastaðurinn kaupir vöruna af þeim og nýtir hráefnið til að útbúa spennandi rétti; parar t.d. mat við íslenskt öl eða notar íslenskt hráefni á skemmtilegan og framandi hátt. Þannig verður til nokkurs konar nýsköpunarmatseðill.

Hægt er að hafa samband við Kolfinnu í gegnum kolfinna@ssnv.is fyrir nánari upplýsingar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið