Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:31 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:31 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:31 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:31 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:31 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:31 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Maria Gaskell hefur verið ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Maria hefur langa reynslu af tónlistarkennslu og stjórnun bæði hér á landi og erlendis og er með B.A. gráðu í tónlist og ensku frá Christ Church háskóla í Bretlandi. Maria hefur einnig lokið P.G.C.E gráðu í tónlistarkennslu frá SPA háskóla í Bretlandi ásamt M.Ed. gráðu í tónlist og skapandi listum frá Exeter háskóla í Bretlandi.
Maria hefur starfað sem tónlistar- og tónmenntakennari í yfir þrjá áratugi. Þau hljóðfæri sem hún hefur kennt á eru m.a. píanó, saxafónn, blokkflauta, gítar, harmonika, klarinet auk söngs. María hefur sett upp söngleiki og samið tónlist í samvinnu við nemendur. Hún hefur gegnt stöðu deildarstjóra og sviðsstjóra tónlistardeildar við nokkra tónlistarskóla, í Bristol, Seyðisfirði, Swiss og London.
Maria kom fyrst til Íslands árið 1991 og kenndi þá við Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu og Húnavallaskóla þar sem hún stjórnaði einnig hljómsveitum og kórum. Maria bjó í 13 ár á Seyðisfirði og starfaði þar sem kennari og organisti. Þar kom hún að ýmsum verkefnum s.s. stjórnun kóra og hljómsveita ásamt því að starfa með leikfélaginu.
Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |