Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hljómsveitin Kvika gefur út sína þriðju breiðskífu 10. júní næstkomandi. Hún ber nafnið The River og í tilkynningu kemur fram að uppspretta nafnsins kemur úr þremur ólíkum áttum m.a. frá lokaupptökum sem áttu sér stað í sumarbústað við ána Blöndu. Auk þess vísar nafnið til tveggja laga á plötunni og til aðstæðna Kvikumanna í Krakow, þar sem unnið var við lagasmíðar.
Í tilkynningu segir:
Það má segja að þetta hafi runnið saman í einn árfarveg úr þremur lækjasprænum. Hugtakið tíminn sem rennandi fljót - óstöðvandi straumur tímans – hefur átt hug Guðna Þórs, laga- og texasmiðs, lengi. Það vill svo til að þessi hugmynd rann inn í tvö lög á plötunni - The River og The Arrow of Time. Sumarið 2019 lögðu meðlimir Kviku, þeir Tumi og Guðni, land undir fót til Katowice og Krakow í Póllandi til að einbeita sér að lagasmíðum. Þar urðu til nokkur lög auk hugmynda sem hlóðust ofan á fyrri hugmyndir. Áin Vistula er ákveðið einkenni Krakow og miðpunktur. Við þessa lengstu á Póllands er mikið mannlíf. Lagið The River er einmitt samið með Vistula í huga eftir nokkrar góðar stundir við ánna. Innblástur lagsins Valentine var einnig fenginn í borginni Krakow að næturlagi á göngu í görðunum umlykis stærsta torgs Evrópu Rynek Glowny. Lagið fjallar um rómantík, spennu og dagdrauma ókunnugs fólks á gangi um garðana.
Til gamans má geta að eitt laganna sjö á plötunni ber nafnið Streets of Warsaw, en eins og nafnið gefur til kynna var það samið í borginni Varsjá á göngu um götur hennar, árið 2018. Það má því með sanni segja að Kvikumenn hafi sótt töluverðan innblástur til Póllands. Ekki má svo gleyma borginni Katowice, hinni listrænu tónlistarborg, en þar urðu einnig til laga- og textabútar. Lokaupptökurnar áttu sér stað í bústað við ána Blöndu, þar sem innblástur var fenginn frá fallegum nið árinnar. Undir þeim kringumstæðum varð ljóst hvert nafn plötunnar skyldi vera.
Hljómplatan The River verður aðgengileg á öllum helstu streymisveitum þann 10. júní næstkomandi.
Lagalisti plötunnar er eftirfarandi:
1. The Arrow of Time https://open.spotify.com/track/5vG1pF7RtzmDFrhNSHlHNm?si=1769a6ce4e184195
2. The River
3. What a Man!
4. Streets of Warsaw
5. Those were the Times
6. Fever https://open.spotify.com/track/6BO6pWkJMTu9SIvPWFGk0U?si=3b701facd1f245af
7. Valentine https://open.spotify.com/track/56Rf5CBlbzs6hzHUgcYC2d?si=a9e548f7985a4d23
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |