Samningur um samvinnurými á Skagaströnd  •   Birna Ágústsdóttir sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi  •   Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar  •   Jóhann Örn ráðinn tengslafulltrúi á fjölskyldusviði Húnaþings vestra  •   Íbúafundur í Skagabyggð á sunnudaginn  •   Að fá að hvíla í undri bænarinnar  •   Auglýst eftir fólki í hópslysaæfingu  •   Sögukorn: Þegar hrunið dundi  •  
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
Fréttir | 27. ágúst 2021 - kl. 09:45
Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum
Heilbrigðisráðherra hefur kynnt breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem taka gildi frá og með morgundeginum. Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 200 manns og reglur um 1 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Aftur á móti verður sund- og baðstöðum, heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að taka á móti leyfðum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi, eins metra regla felld niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum, auk fleiri tilslakana sem nánar eru raktar hér að neðan.
Samkomutakmarkanir frá og með 28. ágúst til 17. september
- Áfram verður miðað við 200 manna fjöldatakmarkanir, 1 metra nálægðartakmörkun og almenna grímuskyldu.
- Sund- og baðstaðir; heimilt að opna fyrir leyfðan hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvar; heimilt að opna fyrir leyfðan hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi.
- Íþróttir: Iðkendur mega vera 200 manns á íþróttaæfingum og -keppnum.
- Eins metra regla fellur niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum.
- Veitingasala heimiluð í hléum á íþróttaviðburðum og sviðslistum.
- Heimild fyrir 200 manns í sviðslistum , bæði á æfingum og sýningum.
- Eins metra regla fellur niður við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga.
- Söfn; heimilt að taka á móti leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi að gættri 1 metra reglu.
- Veitingastaðir; heimilt að taka á móti 200 gestum í rými. Gestir skulu skráðir í sæti í samræmi við ákvæði reglugerðar.
- Skráningarskylda: Á öllum viðburðum verður skylt að skrá gesti í sæti, líkt og á veitingastöðum, í samræmi við ákvæði reglugerðar. Skráningarskyldan á einnig við um einkasamkvæmi sem haldin eru á veitingastöðum eða viðlíka stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar.
Sjá nánari upplýsingar á vef Stjórnarráðsins.
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |