Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:34 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:34 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:34 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:34 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:34 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:34 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Rafíþróttir hafa verið í mikilli sókn hér á landi undanfarin ár. Í fyrravor var hrundið af stað verkefni sem kallast rafíþróttir í Húnaþingi vestra. Tilgangurinn er að auka úrval afþreyingar fyrir krakka í sveitarfélaginu og skapa framtíðaraðstöðu fyrir rafíþróttir, sem gæti líka nýst í önnur verkefni.
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson Ástuson og Aðalsteinn Grétar Guðmundsson höfðu haft verkefnið í bígerð síðan haustið 2019, en þegar Grunnskóli Húnaþings vestra lenti í úrvinnslusóttkví í mars á síðasta ári var ákveðið að búa til vettvang þar sem krakkarnir gætu eytt tíma með vinum sínum í sýndarheimi og jafnvel eignast nýja vini í leiðinni. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.
Þar kemur fram að í vor hófst samstarf við félagsmiðstöðina Óríon og Húnaklúbbinn og í framhaldinu var ákveðið að nefna rafíþróttahluta Húnaklúbbsins Rafhúna. Formaður Húnaklúbbsins, Jessica Aquino, á heiðurinn að því að útvega fjármögnun fyrir verkefnið. Jóhannes og Aðalsteinn hafa séð um val, innkaup og uppsetningu á tölvum en keyptar voru fimm slíkar ásamt aukahlutum. Rafíþróttasamtök Íslands gáfu Húnaklúbbunum svo fimm hágæða leikjastóla sem notaðir voru á heimsmeistaramótinu í League of Legends sem fram fór í Reykjavík í sumarbyrjun.
„Er það von allra sem að verkefninu standa að þessi nýja aðstaða muni nýtast sem flestum í sveitarfélaginu,“ segir á vef Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |