Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 2. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:29 0 0°C
Laxárdalsh. 01:29 0 0°C
Vatnsskarð 01:29 0 0°C
Þverárfjall 01:29 0 0°C
Kjalarnes 01:29 0 0°C
Hafnarfjall 01:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
Jafnteflinu fagnað enda dugði það til að komast í 4-liða úrslit. Mynd: FB/Aðdáendasíða Kormáks
Jafnteflinu fagnað enda dugði það til að komast í 4-liða úrslit. Mynd: FB/Aðdáendasíða Kormáks
Fréttir | 31. ágúst 2021 - kl. 22:13
Kormákur/Hvöt áfram í 4-liða úrslit

Kormákur/Hvöt gerði góða ferð á Álftanes í kvöld þegar seinni leikurinn við samnefnt lið fór fram í úrslitakeppni 4. deildar á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Fyrri leiknum lauk 1-0 á Blönduósvelli og dugði því jafntefli í kvöld til að Kormákur/Hvöt færi áfram í keppninni. Og það varð raunin, leikurinn endaði 1-1 og mætir Kormákur/Hvöt liði Hamars úr Hveragerði í fjögurra liða úrslitum.

Leikurinn var fjörlegur og sótti lið Álftaness fast að marki Kormáks/Hvatar á köflum. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en sex gul spjöld litu dagsins ljós, þrjú á hvort lið. Í raun var ekkert mark skorað í venjulegum leiktíma því það var ekki fyrr en á 5. mínútu í uppbótartíma sem Akil Rondel Dexter De Freitas skoraði fyrir Kormák/Hvöt og mínútu seinna jafnaði Álftanes leikinn. Lengra komust liðin ekki og 1-1 jafntefli staðreynd.

Fyrri leikurinn gegn Hamri í fjögurra liða úrslitum fer fram á föstudaginn klukkan 17:30 og seinni leikurinn þriðjudaginn 7. september klukkan 17.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið