Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, flutti í gær erindi á opinni málstofu í háskólanum um vegi á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar. Jón hefur skoðað ýmsar leiðir og útfærslur hvernig stytta mætti vegalengdir og þá sérstaklega á Norðurlandi. Með slíkum styttingum, sem oft fela í sér byggingu jarðganga, yrðu atvinnusvæði og tækifæri fólks umtalsvert stærri.
Jón sagði m.a. í erindi sínu að ef vegalengdir milli þéttbýliskjarna yrðu styttar hefði það mikil samfélagsleg áhrif. Nefndi hann sem dæmi að Kjalvegur gæti tengt Norður- og Suðurland og skapað þannig mikil tækifæri. Jón hefur einnig teiknað upp möguleg jarðgöng sem myndu verða til þess að bæir eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrókur teldust til eins atvinnusvæðis.
„Það hefur mjög mikil samfélagsleg áhrif að leiðir séu styttar. Það þýðir einfaldlega að fólk er í meiri samskiptum, það eru meiri samskipti milli fólks, og líka í atvinnulífinu og verslun og slíku. Þetta skiptir mjög miklu máli upp á að geta stækkað atvinnusóknarsvæði og það þýðir það að þú hefur úr fleirum störfum að velja sem einstaklingur,“ sagði Jón í samtali við Ríkisútvarpið í gær.
Hann sagði að fleiri verkefni heldur en jarðgöngu væru mjög spennandi í þessu tillit. „Eins og Kjalvegur út frá Skagafirði yfir á Suðurland myndi gjörbreyta aðstæðunum hér á Norðurlandi. Þá eru bara Sunnlendingar komnir eiginlega á milli okkar og Reykjavíkur. Það myndi skapa stórkostleg tækifæri á ýmsum sviðum, ekki síst í ferðaþjónustu,“ sagði Jón.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |