Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:13 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra á aðalskrifstofu á Blönduósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða stöðu skrifstofumanns. Starfið felst í umsjón með nauðungarsölumálum embættisins sem og almennri afgreiðslu á símsvörun. Þá sinnir starfsmaðurinn öðrum tilfallandi verkefnum, s.s. á sviði þinglýsinga, aðfararmála og leyfisveitinga sem og stoðþjónustu við aðrar deildir embættisins. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. mars 2022 eða því sem næst.
Hæfniskröfur
- Hæfni á 3. þrepi skv. íslenska hæfnirammanum eða reynsla í sambærilegu starfi
- Reynsla af skrifstofustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, samvinnufærni og góð þjónustulund.
- Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem fer með framkvæmdarvald ríkisins innan umdæmis síns auk þess að sinna viðamiklum sérverkefnum á landsvísu; rekstri innheimtumiðstöðvar og framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, prófskírteini ef við á og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Þar sem verkefni embættisins tengjast náið störfum lögreglu er gert ráð fyrir að umsækjendur veiti embættinu, með skýrum hætti í kynningarbréfi sínu, heimild til uppflettingar í málaskrárkerfi lögreglu, LÖKE.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.12.2021
Nánari upplýsingar veitir
Birna Ágústsdóttir - birna.agustsdottir1@syslumenn.is
Erna Björg Jónmundsdóttir - ernabj@syslumenn.is - 4582521
Hægt er að sækja um á slóðinni https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/laus-storf-a-starfatorgi/auglysing/?id=26757
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |