Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:42 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í tveimur brúarverkefnum af sjö sem hlotið hafa styrki úr atvinnu- og byggðþróunarsjóði Norðurslóðaáætlunar. Annað verkefnið varðar sjálfbæra hjólaferðamennsku í norðlægum- og dreifðum byggðum þar sem aðrir þátttakendur koma frá Finnlandi, Skotlandi, Færeyjum og Norður-Írlandi. Hitt verkefnið snýst um grænt viðskiptamódel þar sem unnið er með litlum- og meðalstórum fyrirtækjum í að nýta myrkur sem auðlind í vetrarferðamennsku.
Undir lok síðasta árs var tilkynnt hvaða 22 verkefni hefðu fengið brautargengi sem svokölluð brúarverkefni úr atvinnu- og byggðþróunarsjóði Norðurslóðaráætlunar. Verkefnunum er ætlað að byggja brú á milli áherslna 2014-2020 áætlunarinnar og 2021-2027 áætlunarinnar með áherslum beggja. Á sex mánaða verkefnatíma er unnið að þróun verkefnishugmyndar með mögulegum samstarfsaðilum og umsókn til sjóðsins um aðalverkefni undirbúin.
Auk þessara beggja verkefna er SSNV, ásamt Íslenska ferðaklasanum, að leggja upp í evrópskt samstarfsverkefni sjö landa þar sem áherslan er á seiglu og samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu og eflingu hæfni þegar kemur að nýsköpun ásamt því að hvetja til hraðari stafrænni umbreytinga.
Sjá nánari umfjöllun á vef SSNV.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |