Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:53 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Textílmiðstöð Íslands, miðstöð nýsköpunar í textíl, vinnur að mótun Textílklasa í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og með stuðningi úr Lóu. „Klasar eru taldir auka samkeppnishæfni, framleiðni og ýta undir nýsköpun og með klasasamstarfinu er leitast við að skapa vistkerfi fyrir hagaðila af öllu landinu,“ segir í tilkynningu frá Textílmiðstöðinni.
Textílmiðstöðin sem staðsett er á Blönduósi hefur það meginmarkmið vera alþjóðleg miðstöð öflugrar rannsóknar- og þróunarstarfssemi í textílframleiðslu, textíllistum og handverki í textíl. Fyrsta stafræna textílsmiðjan var opnuð á síðasta ári sem er nauðsynleg stoð fyrir aðila í textíliðnaði. Textílmiðstöðin er þátttakandi í ýmsum samstarfsverkefnum á borð við Horizon2020 í verkefninu CENTRINNO, evrópuverkefninu SHEmakes, lausnamótinu Ullarþon, NORA verkefninu Wool Walks and Workshops o.fl.
„Með klasasamstarfi fylgir kraftur sem hraðar ferlum og þróun innan textílgeirans. Til þess þarf að vera stór hópur hagaðila sem er tilbúinn að vinna saman að ákveðnum markmiðum til að skapa ávinning fyrir aðila innan klasans” segir Elsa Arnardóttir, forstöðumaður Textilmiðstöðvar Íslands.
Boðað er til opins fundar um mótun samstarfs um Textílklasa og eru hagaðilar og aðrir áhugasamir hvattir til að skrá sig. Á fundinum fjallar Ásta Kristín Sigurjónsdóttir um Klasastefnu Íslands en hún leiddi vinnuna um gerð stefnunnar fyrir Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið. Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir flytur erindi um mótun nýsköpunarklasa á Norðurlandi sem kallast Norðanátt og hvað ferlið við mótun samstarfsins hefur kennt hagaðilum. Auk þess flytja frumkvöðlar í textílvinnslu örerindi en þar heyrum við frá Önnu Margréti Karlsdóttur frá Ístex, Berglindi Ósk Hlynsdóttur og Sólveigu Dóru Hansdóttur eru með erindi um verkefnið Þráðhyggju, þróunarverkefni á hringrásarkerfi textíls á Íslandi og Árna Rúnari Örvarssyni stofnandi Icelandic Eider. Að erindum loknum stýrir Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi RATA vinnustofu um mótun klasasamstarfsins þar sem hagaðilar fá tækifæri til að taka þátt í að leggja grunn að góðu samstarfi.
Fundurinn fer fram á netinu þann 27. janúar kl. 13:00-16:00.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |