Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:08 0 0°C
Laxárdalsh. 12:08 0 0°C
Vatnsskarð 12:08 0 0°C
Þverárfjall 12:08 0 0°C
Kjalarnes 12:08 0 0°C
Hafnarfjall 12:08 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 21. júní 2022 - kl. 16:21
Huga verði að langtíma aðgerðum til að bregðast við alvarlegri stöðu sauðfjárræktar

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar í landshlutanum. Skorar hún á stjórn völd að taka stöðuna alvarlega og bregðast við með ákveðnum og markvissum hætti. „Mikilvægt er að til viðbótar við þær skammtíma aðgerðir sem þegar hafa verið kynntar verði unnið að langtímalausn. Lýsir stjórn SSNV sig tilbúna til samtals um leiðir og mögulegar aðgerðir,“ segir í bókun stjórnar SSNV frá fundi sínum í dag.

Í henni er vísað í nýútkomna skýrslu um stöðu sauðfjárræktunar á Íslandi sem unnin var af Byggðastofnun fyrir innviðaráðuneytið. Í henni er dregin upp afar dökk mynd af stöðu og framtíðarhorfum sauðfjárræktar á íslandi.

Í skýrslunni kemur fram að hvergi á landinu sé meira fé en á Norðurlandi vestra og þar séu jafnframt ein stærstu sauðfjárbúin. Einnig kemur fram að fjárhagsstaða bænda í Húnavatnssýslum sé með því versta á landinu og að sama skapi meta bændur þar að lífsskilyrði hafi versnað hvað mest undanfarin ár.

Í bókun stjórnar SSNV segir:

Stjórn SSNV lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðunni. Um leið og hún fagnar nýframkomum viðbótarframlögum á árinu 2022 til landbúnaðar og tilkynningum um hækkað afurðaverð vill hún leggja áherslu á að hugað sé að langtíma aðgerðum til að tryggja að þessi mikilvæga starfsemi í sveitum landsins haldi velli. Öflugur landbúnaður í landshlutanum er lykillinn að byggðafestu og stöðugleika. Flótti úr stétt bænda myndi að líkindum leiða til enn frekari fólksfækkunar í landshlutanum þar sem ekki eru mörg önnur störf að hverfa til. Mikil fólksfækkun á svæði sem á mikið undir landbúnaði getur fljótt farið að hafa áhrif á þéttbýliskjarna sem byggja tilveru sína á þjónustu við landbúnað. Rekstur skóla, heilsugæslu, íþróttamannvirkja, verslana, veitingastaða, viðgerðarþjónustu o.m.fl. mun ekki fara varhluta af þeirri fólksfækkun og hætt við að með honum fari bolti hnignunar að rúlla sem erfitt getur verið að stöðva. Því er nauðsynlegt að huga að langtíma aðgerðum til að bregðast við stöðunni og koma í veg fyrir alvarlega byggðaröskun.

Lesa má bókunina í heils sinni á vef SSNV.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið