Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 3. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:03 0 0°C
Laxárdalsh. 11:03 0 0°C
Vatnsskarð 11:03 0 0°C
Þverárfjall 11:03 0 0°C
Kjalarnes 11:03 0 0°C
Hafnarfjall 11:03 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Lerkiskógur að grisjun lokinni. Ljósmynd: Johan Holst
Lerkiskógur að grisjun lokinni. Ljósmynd: Johan Holst
Vel hefur viðrað til skógarvinnu á Hamri í október. Ljósmynd: Guðríður Baldvinsdóttir
Vel hefur viðrað til skógarvinnu á Hamri í október. Ljósmynd: Guðríður Baldvinsdóttir
Fréttir | 28. október 2022 - kl. 11:47
Stærsta grisjun á Norðurlandi hingað til

Grisjunarflokkur skógarhöggsmanna af sex þjóðernum hefur unnið í október að fyrstu grisjun skógar að Hamri á Bakásum í Húnabyggð. Á vef Skógræktarinnar segir að þetta sé líklega stærsta einstaka grisjunarverkefni sem ráðist hefur verið í hjá norðlenskum skógarbændum. Johan Holst, skógræktarráðgjafi Skógræktarinnar í Húnavatnssýslum, skipulagði verkið og stýrði því.

Alls voru grisjaðir 28 hektarar skógar sem er að meðaltali um tuttugu ára gamall. Bakásar blasa við vestan Blöndu þegar ekið er um Langadal frá Blönduósi í átt til Skagafjarðar. Þar er einnig myndarleg skógrækt á vegum Skógræktarfélags Austur-Húnavatnssýslu á jörðinni Gunnfríðarstöðum sem liggur að skógræktarsvæðinu á Hamri.

Á vef Skógræktarinnar er haft eftir Johan að mest hafi verið gróðursett af lerki á Hamri en einnig töluvert af alaskaösp og fleiri tegundum. Grisjunin nú fór fram að mestu í lerkiskógi en lítillega í asparskógi. Í hópi grisjunarmanna voru sjö reyndir skógarhöggsmenn af sex þjóðernum, frá Íslandi, Noregi, Frakklandi, Danmörku, Kanada og Bretlandi. Johan segir að verkið hafi gengið hratt og vel samkvæmt áætlun.

„Með þessari grisjun er búið í haginn fyrir framtíðina því nú hafa verið fjarlægð lélegustu trén úr skóginum og þau sem eftir standa fá betra rými til að vaxa og gildna. Jafnframt tryggir grisjunin að skógurinn þoli betur vindálag þegar hann stækkar. Til verður verðmætari skógur sem þar af leiðandi mun gefa betri og verðmætari afurðir í framtíðinni. Auk þess er grisjun sem þessi góður undirbúningur fyrir næstu grisjun skógarins sem væntanlega verður unnin með grisjunarvél eftir 10-15 ár.“

Að grisjun lokinni tók skógfræðingurinn og skógræktarráðgjafinn Guðríður Baldvinsdóttir verkið út með aðstoð Johans. Á vef Skógræktarinnar má sjá myndir frá Guðríði og Johan. Einnig fylgir kort með grisjunaráætluninni og GPS-gögn sem sýna feril grisjunarmanna við vinnu í skóginum.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið