Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:19 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn í dag. Í ár verður sérstök áhersla lögð á öryggi óvarinna vegfarenda. Minningarathafnir eru hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 14, eftir þriggja ára hlé vegna faraldursins. Þar verða flutt ávörp og einnig verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn. Minningarathafnir víðs vegar um landið eru haldnar á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum klukkan 14 í dag.
Tilgangur með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum.
Að minningardeginum standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, lögreglan og Vegagerðin.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |