Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:12 0 0°C
Laxárdalsh. 04:12 0 0°C
Vatnsskarð 04:12 0 0°C
Þverárfjall 04:12 0 0°C
Kjalarnes 04:12 0 0°C
Hafnarfjall 04:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 30. desember 2022 - kl. 12:59
Sigríður Soffía Þorleifsdóttir er Íþróttamaður ársins 2022 hjá USAH

Kjör Íþróttamanns ársins 2022 hjá USAH var tilkynnt í gær við athöfn í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Íþróttamaður ársins var valin Sigríður Soffía Þorleifsdóttir frá Ungmennafélagi Bólstaðarhlíðarhrepps en hún keppir í frjálsum íþróttum. Sigríður eða Sigga, eins og hún er yfirleitt kölluð, keppti á Héraðsmóti USAH í sumar líkt og undanfarna áratugi og þá keppti hún á Meistaramóti Íslands í öldungaflokki en mótið fór að þessu sinni fram á Sauðárkróki. Þar gerði hún sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í hástökki í aldursflokknum 55-59 ára.

Í öðru sæti í kjörinu varð Una Ósk Guðmundsdóttir frá Hestamannafélaginu Neista og í þriðja sæti varð Guðrún Rut Hreiðarsdóttir einnig frá Hestamannafélaginu Neista.

Við sama tilefni voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar til ungra og efnilega íþróttamanna hjá USAH sem tilnefnd voru af aðildarfélögum sambandsins. Eftirtalin hlutu viðurkenningar:

Elías Már Víðisson, Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps, Elísa Bríet Björnsdóttir, Umf Fram, Harpa Katrín Sigurðardóttir, Umf. Geislum, Samúel Ingi Jónsson, Skotf. Markviss, Sigurjón Bjarni Guðmundsson, Umf. Hvöt og Sunna Margrét Ólafsdóttir, Hestamannaf. Neista.

Þá var einnig veittviðurkenning fyrir Sjálfboðaliða ársins hjá USAH og í ár var það ritnefnd Húnavökuritsins sem fékk viðurkenninguna en hana skipa eftirtalin:

Jóhanna H. Halldórsdóttir, G. Unnar Agnarsson, Ingi Heiðmar Jónsson, Katharina Schneider, Magdalena Berglind Björnsdóttir, Magnús B. Jónsson og Þórhalla Guðbjartsdóttir.

Nánar má lesa um tilnefningar til Íþróttamanns ársins og fleira á síðu USAH á fésbókinni. Allar myndirnar eru frá USAH.

Höf. ass
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið