Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:30 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:30 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:30 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:30 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:30 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:30 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Vatnsnesveg bar á góma í umræðum á Alþingi í gær en vegurinn er orðinn landsfrægur fyrir hversu ömurlegur hann er og stórhættulegur. Það var Bjarni Jónsson, alþingismaður í Norðvesturkjördæmi, sem nefndi veginn á nafn en fyrir 14 mánuðum spurði hann innviðaráðherra hvað liði framkvæmdum við uppbyggingu vegarins og flýtingu þeirra. Enn hefur lítið gerst og benti Bjarni á að vegurinn sé á kafla umferðamesti malarvegurinn í landshlutanum og á landinu öllu.
Bjarni vísaði m.a. í stjórnarsáttmálann en þar segir að Vatnsnesvegur sé stórhættulegur og úr sér genginn og standi engan veginn undir þeirri umferð sem um hann fari. Vegurinn sé lífæð byggðarinnar og ekinn daglega með skólabörn við ömurlegar og viðsjárverðar aðstæður. Þar segir einnig að markvisst verði unnið að lagningu bundins slitlags á tengivegi til að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og auðvelda skólaakstur á svæðum sem nú búi við malarvegi.
Bjarni ítrekaði í ræðu sinni hversu nauðsynlegt það væri að byggja upp veginn, breikka hann og leggja á hann bundið slitlag sem allra fyrst. „Í svörum ráðherra kom þá fram góður hugur, en verk eru til alls fyrst. Vatnsnesvegur hefur verið áætlaður á þriðja tímabili samgönguáætlunar, nokkuð sem íbúar landshlutans geta ekki við unað og við sem hér störfum ættum ekki að gera heldur. Við þurfum að setja meira fé eyrnamerkt í tengivegina, þegar svo stór verkefni eru annars vegar þurfum við að setja sérstaklega fjármuni í þau til að geta klárað þau,“ sagði Bjarni í ræðu sinni.
Ræðu Bjarna í heild sinni má lesa hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |