Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hagstofan birtir í dag upplýsingar um mannfjölda á Íslandi 1. janúar 2023 og þar kemur fram að hann var 387.758 og hefur íbúum fjölgað um 11.510 frá 1. janúar 2022, eða um 3,1%. Er það mesta fjölgun síðan árið 1734 eða eins langt og mannfjöldatölur fyrir Ísland ná. Alls voru 199.826 karlar, 187.800 konur og 132 kynsegin/annað búsett á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 3,5% árið 2022, konum um 2,6% og kynsegin/annað um 80,8%.
Hlutfallsleg fólksfjölgun mest á Suðurnesjum
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 6.651 fleiri 1. janúar 2023 en fyrir ári. Það jafngildir 2,8% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallsleg fólksfjölgun var mest á Suðurnesjum þar sem fjölgaði um 6,7% á síðasta ári eða 1.941 manns. Fólki fjölgaði einnig yfir landsmeðaltali á Suðurlandi, eða um 1.368 einstaklinga (4,2%) og á Vesturlandi (3.1%). Minni hlutfallsleg fólksfjölgun var á Vestfjörðum (2,4%), Norðurlandi eystra (2,0%) og Austurlandi (1,8%). Minnst fjölgun var á Norðurlandi vestra en þar fjölgaði einungis um 27 einstaklinga, eða 0,4%.
Íbúum fækkaði í 8 af 64 sveitarfélögum
Sveitarfélög á Íslandi voru alls 64 þann 1. janúar 2023 og hafði þeim fækkað um fimm frá fyrra ári. Reykjavík var fjölmennasta sveitarfélagið með 139.875 íbúa en Árneshreppur á Ströndum var fámennast með 47 íbúa. Alls höfðu 29 sveitarfélög færri en 1.000 íbúa en í ellefu sveitarfélögum voru 5.000 íbúar eða fleiri. Árið 2022 fækkaði íbúum í 8 af 64 sveitarfélögum landsins og var fækkunin hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi (6,8%). Af ellefu stærstu sveitarfélögunum, með 5.000 íbúa eða fleiri, fjölgaði hlutfallslega mest í Reykjanesbæ (8,0%), Sveitarfélaginu Árborg (3,7%) og í Mosfellsbæ og Reykjavíkurborg sem héldu í við fólksfjölgun á landsvísu (3,1%). Af 11 stærstu sveitarfélögunum fjölgaði minnst í Fjarðabyggð (1,1%).
Af sveitarfélögum í Húnavatnssýslum fækkaði íbúum í Skagabyggð um einn og í Húnabyggð um 17. Fjölgun varð á Skagaströnd um einn og í Húnaþingi vestra fjölgaði íbúum um 32.
Sjá nánari upplýsingar á www.hagstofa.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |