Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Vinnslusaga hitaveitu RARIK í Austur-Húnavatnssýslu hefur verið vörðuð áskorunum og stærsta áskorunin núna er að mæta eftirspurn með lækkandi vatnsborði í jarðhitakerfum. Fyrir liggur hófleg eftirspurn eftir vatni í takt við íbúaþróun auk eftirspurnar frá iðnaði en fyrirséð er að veitan eigi í erfiðleikum með að viðhalda núverandi vinnslu. Því er nú verið að bora eftir meira vatni og rannsaka ný vinnslusvæði ásamt aðgerðum til að lágmarka sóun. Þetta kemur fram í svörum hitaveitunnar sem birt eru í skýrslunni Hitaveitur á Íslandi – Úttekt á stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhitavatns til húshitunar.
Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaðamannafundi á föstudaginn en hún er unnin að beiðni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Í henni er lagt mat á stöðu rannsókna og gagna um auðlindina og hvernig þróun nýtingar hefur verið. Einnig er útlistað hvaða hindranir kunni að vera við frekari jarðhitaleit eða nýtingu, sem og hvaða tækifæri eru til sjálfbærrar nýtingar jarðhita til framtíðar.
Í skýrslunni kemur fram að um 2/3 hlutar hitaveitna sjá fram á aukna eftirspurn og telja fyrirsjáanleg vandamál við að mæta henni og útliti er fyrir að eftirspurn hjá um 15 hitaveitum fari um eða yfir 100% fram yfir afkastagetu. Margar hitaveitur eru þó þegar komnar áleiðis í að skoða hvernig auknum kröfum verði mætt.
Sérstakur kafli er um hitaveitu RARIK í Austur-Húnavatnssýslu sem kölluð er hitaveita Blönduóss og Skagastrandar. Þar kemur fram að veitan hefur ekki skoðað notkun varmadæla en hefur lagt til notkun þeirra sem lausn á varma til húshitunar í dreifbýli. Fram kemur að ástand holna og dreifikerfis er metið gott og að aðveituæð frá Reykjum á Blönduósi hafi verið endurnýjuð samhliða lagningu veitunnar á Skagaströnd. Þá segir að veitan hafi ekki gilda stefnu eða samþykkta framtíðarsýn.
Blaðamannafundinn þar sem skýrslan var kynnt má sjá hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |