Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:06 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:06 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:06 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:06 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:06 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:06 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á vef Húnabyggðar er auglýst eftir verkefnastjóra ferðamála í sveitarfélaginu en um tímabundið starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og vinni í sumar og út ágúst að minnsta kosti. Meðal verkefna sem liggja fyrir eru t.d. utanumhald um ferðamannastaði sveitarfélagins, skálar í leigu, opin svæði og fleira, uppbygging ferðamannastaða, en nokkur svæði eru í þróun eins og Þrístapar, Vatnsdæla og gamli bærinn, styrkjaumsóknir, samskipti við verktaka og fleira.
Í auglýsingunni segir: „Sveitarfélagið er með ýmis járn í eldinum hvað varðar uppbyggingu í ferðmálum og starfið felst í að halda utan um þá uppbyggingu og koma áhersluverkefnum þessa árs í framkvæmd. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu og/eða menntun sem nýtist í starfi en það er algjör forsenda að brenna fyrir uppbyggingu ferðamála. Tölvukunnátta og færni í notkun samfélagsmiðla er mikilvæg. Viðkomandi þarf að geta starfað mjög sjálfstætt og haldið utan um samskipti við ýmiskonar hagaðila ferðmennsku í Húnabyggð sem eru bæðir opinberir aðilar, einkarekin fyrirtæki og einstaklingar. Ef þú ert jákvæð, skapandi og drífandi persóna þá er þetta skemmtilegt tækifæri til að taka þátt í mjög spennandi uppbyggingu Húnabyggðar í ferðmálum.“
Umsóknir sendist á hunabyggd@hunabyggd.is merkt „Verkefnastjóri ferðmála.” Umsóknarfrestur er til 31. maí 2023.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |