Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum í Hrútafirði opnar á næstunni sýningu þar sem söguefnið er rekaviðanytjar. „Þetta eru nytjar sem skipta miklu máli,“ segir Benjamín Kristinsson, safnstjóri á Reykjum, í viðtali við Morgunblaðið sem fjallaði um málið á mánudaginn. Um aldir hafa kynstrin öll af góðvið borist norðan frá Síberíu í Rússland að Íslandsströndum. Hafstraumar liggja þannig að einkum og helst hefur við þennan rekið á fjörur í norðanverðri Strandasýslu og verið þar gott búsílag.
Fram kemur í Morgunblaðinu að Benjamín, sem er frá Dröngum norðarlega á Ströndum, vinni nú að uppsetningu sýningarinnar um efni sem hann þekkir vel. Að Reykjum er nú búið að draga að rekavið og á næstunni verður þar sett upp sögunarvirki. Þar getur fólk séð hvernig reki var með fyrri aðferðum klofinn og sagaður. Þá kemur fram í umfjölluninni að á Reykjum sé búið að setja upp fræðsluskilti sem segja sögu rekanytja. Titillinn er Frá fræi til asks; það er hvernig trjáfræið verður að við sem svo rekur um höf til Íslands. Varð og verður hér að efnivið.
Sjá nánari umfjöllun í Morgunblaðinu mánudaginn 8. maí.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |