Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:19 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Stólpar styrktarfélag á Hvammstanga hélt aðalfund sinn þann 11. maí 2023 í gamla verslunarhúsi Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga. Á fundinum var samþykkt samhljóða að leggja félagið niður og eigur þess færðar Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra til eignar og afnota í tómstundastarfi þess.
Gjöfin samanstendur af ýmsum rafmagnsverkfærum einkum til trésmíða svo sem: sög, heflar, borvélar, fræsarar, hefilbekkur og ýmiss handverkfæri til smíða og útskurðar. Einnig fylgdu með um 270 þúsund í peningum.
Stólpar styrktarfélag var stofnað árið 2009 og hafði um árabil veg og vanda af námskeiðahaldi í ýmiss konar handverki fyrir félaga sína og aðra íbúa sveitarfélagsins.
Sólborg Dóra Eðvaldsdóttir formaður Stólpa ávarpaði samkomuna og afhenti Guðmundi Hauki Sigurðssyni formanni Félags eldri borgara gjöfina. Guðmundur þakkaði þessa höfðinglegu gjöf og sagðist fullviss um að hún myndi styrkja félagið enn frekar í blómlegu tómstundastarfi og efla handverk meðal félagsmanna og þannig halda merki Stólpafélaga á lofti.
Félagar Stólpa báru fram glæsilegar veitingar í fundarlok sem viðstaddir gæddu sér á.
-Fréttatilkynning-
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |