Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:53 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, undirrituðu í dag samkomulag um að auka framboð á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu á tímabilinu 2024-2029 og fjármagna uppbyggingu á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði.
Stefnt er að því að byggðar verði rúmlega 50 íbúðir á fimm árum og þar af verði 19 þeirra byggðar án hagnaðarsjónarmiða fyrir fólk undir tilteknum tekju- og eignamörkum, íbúðir sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána. Árleg uppbygging verður nokkuð jöfn en stefnt er að því að byggja 8-12 íbúðir á ári. Sagt er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.
Samkomulagið er gert á grunni rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir í húsnæðismálum, sem gerður var sumarið 2022. Húnaþing vestra er þriðja sveitarfélagið sem gerir slíkan samning en í fyrra var samið við Reykjavíkurborg og Mýrdalshrepp.
Rúmlega 50 íbúðir á samningstímabilinu
Markmið samkomulagsins er að byggðar verði rúmlega 50 íbúðir í Húnaþingi vestra á samningstímabilinu í samræmi við metna þörf samkvæmt húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Samkomulagið gerir ráð fyrir auknu framboði hagkvæmra íbúða með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og að 19 slíkar íbúðir verða byggðar á næstu fimm árum. Það jafngildir um 3% allra íbúða í Húnaþingi vestra sem eru nú 597 talsins, skv. mannvirkjaskrá HMS.
Áformin eru í samræmi við nýstaðfesta húsnæðisáætlun Húnaþings vestra fyrir árið 2024 og mun sveitarfélagið leitast við að tryggja nægjanlegt framboð byggingarhæfra lóða í samræmi við samkomulagið þannig að byggingarhæfar lóðir á næstu árum rúmi 25-35 íbúðir ár hvert.
„Þörfin fyrir hraðari uppbyggingu húsnæðis er mikil um allt land. Það gleður mig að Húnaþing vestra ætli að stórauka uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á næstu árum í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið sýnir með þessu gott fordæmi en samningur sama efnis var undirritaður við Reykjavíkurborg og Mýrdalshrepp í fyrra. Miklu skiptir að auka framboð í almenna íbúðakerfinu þar sem ríki og sveitarfélög vinna sameiginlega að því að niðurgreiða íbúðir með stofnframlögum og hlutdeildarlánum fyrir fólk undir tilteknum tekju- og eignamörkum,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra á vef Stjórnarráðsins.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra segir að með samkomulaginu sé stigið stórt skref í að mæta þörf fyrir íbúðarhúsnæði í Húnaþingi vestra. „Uppbyggingin gefur okkur um leið tækifæri til að sækja fram með ákveðnari hætti en áður, fjölga atvinnutækifærum og laða til okkar fleira fólk. Samkomulagið sýnir svo ekki verður um villst að Húnaþing vestra er samfélag í sókn.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |