Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:13 0 0°C
Laxárdalsh. 01:13 0 0°C
Vatnsskarð 01:13 0 0°C
Þverárfjall 01:13 0 0°C
Kjalarnes 01:13 0 0°C
Hafnarfjall 01:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 15. nóvember 2012 - kl. 10:06
Framhaldsdeild (dreifnám) er möguleiki í Austur-Húnavatnssýslu
Fréttatilkynning

Á dögunum fóru fulltrúar sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu á fund mennta- og menningarmálaráðherra til að fylgja eftir ósk um stuðning við að starfrækja dreifnám í samstarfi við FNV í heimahéraði.

Rökin fyrir beiðninni eru m.a. eftirfarandi:

Að gefa nemendum í A-Hún. kost á að stunda framhaldsnám í heimabyggð með stofnun framhaldsdeildar á Blönduósi. Gert er ráð fyrir að núverandi skólaakstur sveitarfélaganna verði nýttur til að gera  nemendum úr Húnavatnshreppi og Skagaströnd mögulegt að nýta dreifnám ásamt ungmennum á Blönduósi.

Kennslan fer fram í gegnum fjarbúnað, með aðstoð kennara á kennslustað í fjarnámsstofu.

Um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir fjölskyldur í A-Hún. Ólíkt því sem blasir við nemendum í þéttbýli, eftir að grunnskóla lýkur, verða nemendur í A-Hún. að sætta sig við brottflutning að heiman um 16 ára aldur til þess að geta stundað framhaldsnám. Þetta hefur augljóslega aukinn kostnað í för með sér fyrir forráðamenn sem þurfa að standa staum af kostnaði við dvöl á heimavist og í sumum tilfellum að halda úti tveimur heimilum á meðan á námi stendur.

Vonir eru bundnar við að uppbygging dreifnáms komi til með að minnka stórlega brottfall nemenda úr framhaldsskóla. Mörg dæmi eru um að nemendur sem treysta sér illa til að búa fjarri fjölskyldu flosni upp úr námi sökum öryggis- og stuðningsleysis. 

Ungmenni á aldrinum 16-18 ára eru ákaflega mikilvæg þeim samfélögum sem þau tilheyra. Því er mikilvægt að þau fái tækifæri til þess að dvelja á heimilum sínum eins lengi og kostur er og vera virkir þátttakendur í menningar-  félags- og íþróttalífi sinna samfélaga.

Annar markhópur dreifnáms eru fullorðnir eintaklingar, eða ungmenni sem flosnað hafa úr námi,  sem gætu nýtt sér þennan möguleika til þess að hefja nám eða halda áfram námi sem annars hefði ekki orðið.

Sannfæring er fyrir því að slíkt fyrirkomulag hefði víðtæk og mikilvæg áhrif á allt samfélag í Austur Húnavatnssýslu og óskuðu því sveitarfélögin eftir stuðningi við verkefnið.  

Á fundinum með ráðherra og aðstoðarmönnum hennar komu fulltrúar sveitarfélaganna öllum helstu rökum vel til skila. Fundurinn var jákvæður  og árangursríkur og lítur nú út fyrir að ekki sé lengur spurning um  hvort, heldur hvenær, dreifnám verði starfrækt í sýslunni. 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið