Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:06 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:06 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:06 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:06 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:06 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:06 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ágætu kjósendur í Blönduósbæ
L-listinn bíður fram krafta sína í annað sinn í sveitarstjórnarkosningum 2014. Listan skipa einstaklingar á öllum aldri með mismunandi reynslu og menntun. Í hópnum eru aðilar sem starfað hafa í bæjarstjórn á undanförnum árum með mikla reynslu af málefnum sveitafélaga. Frambjóðendur listans hafa óbifandi trú á byggðarlagi sínu og vilja bjóða fram krafta sína til að takast á við verkefnin framundan.
Fjármálastaða sveitarfélagsins hefur styrkts á undanförnum árum og öll skilyrði til að vera bjartsýn á framtíð sveitarfélagsins. L-listinn leggur áherslu á áframhaldandi ábyrga fjármálastjórn. Skuldastaðan er komin undir mörk þeirra reglna sem sveitarfélögunum eru settar.
Blönduósbær er vel staðsettur, í þjóðbraut og greiðar samgöngur við aðra landshluta.
Það eru markmið L-listans að leggja mikla áherslu á eflingu atvinnulífsins þar sem næg atvinna er undirstaða samfélagsins. Þetta verður gert með nýtingu nýrra tækifæra og ekki síður styrkingu þess sem fyrir er. Lögð verður áhersla á að sveitarfélagið skapi atvinnustarfsemi góð skilyrði til að þróast í sveitarfélaginu.
Vinna þarf áfram að þeim verkefnum sem unnið hefur verið að s.s. gagnaver, biodisel, aukningu í opinberri starfsemi, ferðamálum og einnig kappkostað að afla nýrra tækifæra.
Gera þarf kröfu um að þingsályktun Alþingis frá 15. jan. 2014 nái tilgangi sínum og fram fari markviss vinna að eflingu atvinnulífs í sýslunni.
Horft verði til þess að nýta orku Blönduvirkjunar til atvinnuppbyggingar á svæðinu og þá sérstaklega þá möguleika á frekari orkuframleiðslu sem þar er fyrir hendi.
L-listinn vill standa vörð um samfélagsþjónustuna og stuðla að áframhaldandi þróun hennar. Stefnt skal að því að koma starfsemi grunnskólans undir sama þak. Þegar hefur verið lagður grunnur að verkefninu og viljum hraðað því eins og fjárhagsstaðan leyfir.
Gerð verði áætlun um viðhald eigna bæjarins og verkefnum forgangsraðað í samræmi við fjárhagslega getu.
Taka þarf til endurskoðunar samstarfsverkefni sveitarfélaganna á svæðinu með skilvirkni og hagkvæmni í huga. Það er ekki ásættanlegt að halda úti starfsemi sem ekki skilar íbúunum árangri.
L-listinn styður sameiningu sveitarfélaga á svæðinu harmar að ekki hafi náðst árangur í því eins og hagsmunir íbúa svæðisins eru augljósir.
Valgarður Hilmarsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |