Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Við viljum vekja athygli á að í kvöld,
mánudagskvöldið 19. maí verður umræða um velferðamál á kosningaskrifstofu
L-listans.
Ég hef búið á Blönduósi síðastliðin 6
ár ásamt fjölskyldu minni og tel það vera forréttindi að búa á svona
fjölskylduvænum stað. Ég starfa sem hjúkrunarfræðingur og í sjúkraflutningum á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Heilbrigðismál og heilsutengd málefni hafa
alltaf verið mér hugleikin. Þátttaka í sveitarstjórnarmálum er ein leið til að
hafa áhrif á samfélagið sem við búum í og hef ég áhuga á að beita mér fyrir að
byggja enn frekar upp fjölskylduvænt samfélag með metnaðarfullri
velferðarþjónustu.
Forvarnarstarf
Uppbygging og stuðningur við gróskumikið íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir alla
aldurshópa er mikilvægt fyrir samfélagið m.a. sem heilsuefling, afþreying og í
forvarnarstarfi. Forvarnarstarf er mikilvægur þáttur í hverju samfélagi og
getur komið í veg fyrir vanda í framtíðinni. Við hjá L-listanum viljum leggja
áherslu á eflingu forvarnastarfs með áherslu á sjálfstyrkingu ungna sem aldna.
Grunnstoðir Blönduósbæjar eru sterkar, við getum státað af góðum leik-, grunn-
og tónlistarskóla, félagsmiðstöð, dreifnámi, vinnuskóla, íþróttafélags og
félagsstarfs aldraðra. Þessar stoðir eru grunnurinn að forvarnarstarfi ásamt
góðri félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
L-listinn stefnir á að vinna að forvarnarstefnu fyrir börn, ungmenni og
aldraðra. Forvarnir geta verið margháttaðar og geta beinst bæði að
einstaklingum og ólíkum hópum samfélagsins. Það er hins vegar sameiginlegt
fyrir forvarnir að þeim er ávallt ætlað að koma í veg fyrir að vandamál nái að
þróast. Með samhæfðu og öflugu forvarnarstarfi helstu stoða samfélagsins mætti
koma í veg fyrir mannlegar þjáningar og spara umtalsverða fjármuni.
Aldraðir
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er unnið að því að flytja ábyrgð á
helstu meginþáttum þjónustu við aldraða frá ríki til sveitarfélaga. Einn liður
í undirbúningi fyrir sveitafélagið er að hafa eins konar öldurnarráð eða
þjónustuhóp aldraðra eins og heilbrigðislög gera ráð fyrir. Markmið
þjónustuhóps er meðal annars að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð
aldraðra, samhæfa þjónustu og gera tillögur til sveitastjórna um
öldrunarþjónustu. Þannig er leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu
sem þeir þarfnast og þeim séu kynntir þá kostir sem í boði eru. L-listinn
stefnir að því að stofna þjónustuhóp aldraðra á kjörtímabilinu til að leitast
við að tryggja öldruðum þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
Heilbrigðisþjónusta
Undirbúningur fyrir sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi stendur nú
yfir. Að mínu mati geta legið tækifæri í sameiningunni og tel ég að við ættum
að geta bætt við okkur störfum og aukið þjónustuna enn frekar. Við eigum stórt
húsnæði sem er vel tækjum búið og erum með góðan mannauð þessu þarf að koma á
framfæri til ráðuneytis og standa vörð um þá þjónustu sem þegar er veitt.
Einnig tel ég mikilvægt að taka þátt í innleiðingu hreyfiseðla en hún er nú
þegar hafin í nokkrum sveitafélögum. Hreyfiseðlar eru ávísun á hreyfingu sem
meðferðarúrræði. Þar tel ég vera tækifæri til samstarfs heilsugæslu HSB og
okkar glæsilegu íþróttamiðstöðvar.
Tækifæri samfélagsins liggja víða, eins og komið hefur fram
eru grunnstoðir samfélagsins okkar sterkar. Við þurfum að samhæfa þjónustu,
nýta og efla þá styrkleika sem við höfum til að veita íbúum okkar
framúrskarandi þjónustu.
Gerður Beta Jóhannsdóttir
Skipar 6. sæti L-listans
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |