Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nú eru sveitasjórnarkosninar að ganga í garð. Hér í Húnavatnshreppi á að kjósa
samhliða sveitastjórnakosningunum um hvort íbúar hreppsins vilji sameinast öðrum bæjar eða
sveitarfélögum hér í sýslunni. Ég tel að nú verðum við að láta slag standa og
kjósa sameiningu. Fyrsta skrefið er að sameinast Blönduósbæ. Það getur ekki
gengið svona áfram að pukrast hver í sínu horni með líklega fleiri
sveitasjórnarmenn hér í sýslunni heldur en í Reykjavík allri, reka marga skóla
með sífækkandi nemendum en alltaf kostar svipað að reka hvern skóla, hvort sem
nemendur eru 50 eða nær 200..
Ég eins og nokkrir aðrir
hér í hreppnum eigum börn sem enn ganga í grunnskóla. Ég get ekki séð að þeirra
hagsmunum sé vel borgið með þessari skólagöngu eins og hún lítur út í dag. Þetta
eru bekkir með 2 til 4 krökkum í, og
hvernig í ósköpunum ættlum við að láta börnunum vegna vel í lífinu ef þau geta
aldrei á sinni skólagöngu elft eða lært
félagsleg tengsl og félagslega færni. Það er ekki hægt þegar einingarnar eru
svona litlar, 2 stelpur í bekk eða bara einn strákur og ein stelpa. Þú hefur
ekkert val um hver verður þinn vinur næstu 10 árin. Svo að hinni hliðinni. Það
getur ekki verið auðvelt fyrir kennara að hafa námsefni handa kanski 4 bekkjum,
sem eru í samkennslu hverju sinni, og hlýtur að bitna á einhver hátt á sumum
nemendum.
Ég hef fulla trú á
kennurum og starfsmönnum skólans þeir vinna frábært starf og eru góðir í sínu,
eins og í öllum skólum þar sem gott starfsfólk er. Hver skóli er ekki betri en
þeir sem þar starfa, en nú er bara svo komið að við þurfum að líta framm á við og
stækka heildina. Það er mun betra fyrir okkar yngstu þegna að hafa fleiri
jafnaldra til að lifa með. Það styrkir þá félagslega, það auðveldar þeim lífið námslega
og skólinn verður ekki verri, heldur
hlýtur hann að verða mun markvissari. Svo fyrir okkur hin sem borgum brúsann á
endanum þá er þetta auðvitað mun hagkvæmara og öll umsýsla mun einfaldari. Ef
við hugsum þetta örlítið lengra þá held ég að við sjáum öll að þetta styrkir bara
okkar sýslu. Það blasir við að með því að sameina Húnavallaskóla og Blönduskóla
verður til skóli með um 200 nemendum. Hæfileg stærð á bekk er talin 18 – 25
nemendur. Það þarf engan stærðfræðing til að segja okkur hvað þetta verður
miklu ódýrara um leið og það verður betri skóli. Þetta getur líka aukið
möguleika á framhaldsnámi í sýslunni eftir grunnskóla. Skólahald getur hins
vegar verið á báðum stöðum, ef hentugt þykir. Það er jafn langt frá Blönduósi í
Húnavallaskóla og frá Húnavöllum niður á ós. .
Við sækjum öll þjónustu á
Blönduós og ansi margir vinna þar sína vinnu líka. Þetta er allt svo tengt að
ég sé ekki af hverju við getum ekki bara gert þetta að einu sveitarfélagi líka.
Sumir horfa framm á við en aðrir ekki. Ég get örugglega selt þessum, sem engar
breytingar vilja, gamlan dráttarjálk til bústarfana það er sjálfsagt hægt að
finna gamla kolaeldavél og sauðskinnsskó og annað sem tilheyrði fortíðinni, en
því miður fyrir þá, þá lifum við í nútíðinni og hugsum nokkur ár framm í
tímann.
Ég hef aldrei hitt þann
sem getur heldur sagt mér hvað sé svona óskaplega slæmt við það að sameinast
öðrum sveitarfélögum. Er það nafnið sem hið nýja sveitarfélag á að heita? Er
það að börnin þurfi að umgangast of mörg börn? Er það bara af því bara? Eða er
það að þá höfum við ekki okkar eigin sveitarstjórnarmenn úr sveitinni? Hver
segir að okkar fólk geti ekki komist í stjórn hins nýja sveitarfélags? Er ekki
flottara að vera bæjarfulltrúi í stóru sveitarfélagi en hreppsnefndarmaður, ef
það er meginmarkmið að komast í hreppsnefndina? Nei ég bara spyr eins og heimaskrítinn bóndi
úr sveitinni.
Hugsum um hag okkar barna
og sveitarfélagsins og kjósum sameiningu.
Með kveðju úr sveitinni
Óli á Sveinsstöðum
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |