Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:02 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:02 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:02 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:02 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:02 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:02 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Pistill eftir Guðmund Hauk Jakobsson sem skipar 2 sæti á
L-listanum
Framtíð okkar
byggist á að íbúar geti haft vinnu við sitt hæfi. Öll viljum við stefna að því
að auka fjölbreytni í atvinnulífi og fjölga störfum sem svo leiðir af sér aukna
þjónustu í okkar bæ. Ég hef í gegnum fyrirtæki mitt N1 píparann, ásamt félaga
mínum byggt upp þjónustufyrirtæki og vill nýta góða reynslu mína af
þeirri uppbyggingu til að vinna með nýjum aðilum að atvinnuuppbyggingu á
Blönduósi. Áherslur L-listans eru að auka fjölbreytni og hvetja til
sprotastarfsemi sem oft getur leitt af sér öflug fyrirtæki. Okkar möguleikar
eru t.d. í ferðaþjónustu, þjónstustörfum og ýmiskonar framleiðslustarfssemi en
dæmi um vel heppnaða uppbyggingu slíkra fyrirtækja er Ísgel, Léttitækni, Vilkó
og SAH afurðir.
Frumkvæði þessara
fyrirtækja sem hafa vaxið og dafnað á Blönduósi er okkur hvatning.
Ferðaþjónustan er vaxandi og sá kraftur sem þar er kom best í ljós þegar
haldnar voru vinnustofur á vegum Ferðamálafélags A-Hún í vetur og unnið með
góðar hugmyndir að nýjum fyrirtækjum og möguleikum í ferðaþjónstu. Þar
sannaðist að krafturinn er mestur í einstaklingnum þegar hann fylgir eftir
hugmyndum sínum um ný tækifæri í framboði á þjónustu við ferðamenn. Fyrstu
fyrirtækin eftir þessa vinnu eru að líta dagsins ljós og heita Vötnin sem er
stangveiðiþjónusta, Una Travel ferðaskrifstofa, útimarkaður og Húnar adventures
sem er hugsað sem sérhæfð ferðaþjónusta með jeppaferðir. Við verðum
einnig að hafa langtímamarkmið um uppbyggingu í atvinnumálum með nýtingu á
raforku frá Blönduvirkjun en Alþingi Íslendinga samþykkti ályktun um uppbyggingu
í atvinnumálum í Austur-Húnavatnssýslu á vorþingi sínu. Þessari ályktun munum
við fylgja eftir og koma á samstarfi við stjórnvöld og fyrirtæki um markvissa
atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Ég hvet ykkur, kjósendur góðir til að koma og
ræða um atvinnumálin við okkur frambjóðendur L-listans þriðjudaginn 27. Maí á
Hótelinu á Blönduósi.
Hugmyndir verða
aldrei að veruleika nema einhver hafi trú á þeim. Þetta þekki ég best úr
eigin ranni en atvinnumálin hafa alltaf verið mér hugleikin. Ég vona að við
eigum samleið á næsta kjörtímabili og hvet ykkur til að kjósa L –listann í
kosningum þann 31. maí nk.
Tækifæri okkar
felast í að taka þátt og að hafa áhrif á okkar samfélag. Við sem hér búum
þekkjum það og ég tel það best þegar við getum sameinast um að halda áfram að
efla samfélagið með jákvæðum hætti. Þess vegna gef ég kost á mér til starfa á
þessum vettvangi og leita eftir ykkar stuðningi til þess.
Með jákvæðni og bjarstsýni að leiðarljósi
Guðmundur Haukur Jakobsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |