Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:30 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:30 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:30 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:30 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:30 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:30 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ágætu Skagstrendingar, ég óska ykkur og
okkur öllum til hamingju með það að fá tækifæri til að nýta kosningaréttinn
þann 31. maí næstkomandi. Ég býð mig
fram til áframhaldandi vinnu í ykkar þágu næsta kjörtímabil enda hafa
síðastliðin átta ár verið afar lærdómsrík og í flestum tilfellum skemmtileg. Ég
tel afar mikilvægt að innan sveitarstjórna sé fólk sem hefur öðlast reynslu og
þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Það segi ég fyrst og fremst vegna þess að mér
hefur lærst að oft eru mál ekki eins einföld og sjálfsögð eins og þau virðast við
fyrstu sýn, því jafnvel í litlu sveitarfélagi eins og okkar þarf stjórnsýslan
að vera hin sama og í stærri samfélögum. Flestir sem hafa starfað að
sveitarstjórnarmálum eru sammála um að það taki að minnsta kosti eitt kjörtímabil
að komast inn í hvernig stjórnsýslan
virkar og um hvað verkefni og skyldur sveitarfélaga í raun snúast. Það er auðvitað jafnframt mikilvægt að í
sveitastjórnum sé um einhverja endurnýjun að ræða og ekki síður að til starfa
veljist jákvætt, víðsýnt og samfélagslega sinnað fólk með fjölbreytta reynslu
úr atvinnu- og félagsmálum.
Ég tel að með því að veita
Skagastrandarlistanum brautargengi í komandi kosningum sé verið að velja fólk í
sveitarstjórn sem hefur einmitt þessa eiginleika. Enda má sannarlega halda því
fram að þið, kjósendur á Skagaströnd, hafið stillt upp í efstu fimm sæti
listans. Við val á listann var leitast við að nota eins opið og lýðræðislegt ferli
og mögulegt var. Niðurstaðan var sú að rúmlega 40% af kosningabæru fólki á
Skagaströnd tók þátt í uppstillingu listans. Öllum stóð til boða að bjóða sig
fram, allir höfðu rétt til að kjósa og allir höfðu tækifæri til þess að hafa
áhrif á hvernig staðið var að kosningunni. Allt var þetta framkvæmt á þremur
opnum borgarafundum. Þið svöruðuð kallinu og sýnduð að þið hafið áhuga á
samfélaginu okkar enda full ástæða til.
Fólkið á Skagastrandarlistanum vinnur nú að
því að koma stefnumálum sínum á framfæri. Okkur finnst að þið eigið að eiga
kost á því að hlýða á málflutning okkar. Við höfum því formlega farið þess á leit við
oddvitaefni mótframboðsins að haldinn verði sameiginlegur framboðsfundur þar
sem bæði framboðin kynna sín mál og ykkur gefst kærkomið tækifæri að leggja
fram fyrirspurnir og fá svör við spurningum ykkar.
Hlakka til að eiga við ykkur orðastað
xHalldór Gunnar Ólafsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |