Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nú líður senn að kosningum til sveitarstjórna. Um allt land hafa komið fram listar með hæfu fólki sem kýs að bjóða fram krafta sína til starfa í sínum samfélögum. Þar á meðal er Ð-listi á Skagaströnd, sem er listi allra Skagstrendinga.
Í efsta sæti, fremstur meðal jafningja, er Steindór Haraldsson, innfæddur Skagstrendingur. Hann er einn af þeim sem vill sveitarfélaginu sínu vel. Síðustu fjögur ár hef ég setið á kirkjuþingi með Steindóri og við kynnst mæta vel í gengum það starf. Það sem einkennir vinnubrögð Steindórs er gríðarlega góður undirbúningur. Hann fer ekki af stað með nein mál án þess að hafa undirbúið þau gaumgæfileg, reynt að átta sig á öllum málavöxtum og sjá rök með og á móti. Það er hæfileiki sem ekki er öllum gefinn en nýtist afar víða.
Það sem mér hefur fundist best við að vinna með Steindóri er að hann alla jafna tilbúinn að hlusta á skoðanir annarra og jafnvel skipta um skoðun, sjái hann að önnur rök séu betri en hann var sjálfur með. Í samvinnu skiptir þetta höfuðmáli.
Þegar Steindór hefur hins vegar tekið ákvörðun þá er hann afar fylginn sér og þrautseigur að koma málum í gegn. Hann hefur einnig þann kost að kunna að greina málefni frá persónum. Þetta er ekki öllum gefið en Steindór hefur fengið í ríkum mæli.
Að mínu mati væri það góður kostur fyrir Skagstrendinga að veita Steindóri Haraldssyni og Ð-listanum brautargengi. Þar er í fylkingarbrjósti fólk sem vill sveitarfélaginu sínu allt hið besta. Það er gríðarlega mikilvægt.
Á góðum stað segir að vilji sé allt sem þarf. Ð-listann prýðir fólk sem vill og langar til að gera gott samfélag betra.
Birna G. Konráðsdóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |