Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:56 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:56 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:56 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:56 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:56 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:56 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
A-lista - Lista framtíðar Í Húnavatnshreppi skipa samhentur hópur fólks sem með
bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi vill leggja sitt að mörkum til eflingar
samfélagsins.
Húnavatnshreppur
hefur eins og stærstur hluti landsbyggðarinnar búið við viðvarandi
fólksfækkun sem veikir allar grunnstoðir
samfélagsins, skekkir aldurssamsetningu og myndi með óbreyttri þróun valda hruni
á byggð.
Við sem
að A-lista. Lista framtíðar stöndum höfum fulla trú á að snúa megi vörn í sókn. Við búum að víðfeðmustu
gróðursvæðum landsins og landrými er óvíða meira. Sú auðlind gerir ekkert annað
en að vaxa. Ferðamenn bruna flestir
gegnum Húnavatnssýslur án þess að vita hvað svæðið hefur uppá að bjóða. Því þarf að breyta og markaðssetja svæðið og þá mun ferðamannaþjónusta verða vaxandi atvinnugrein hér sem annarsstaðar,,
þá er atvinnusköpun sem byggir á orku Blönduvirkjunar vonandi ekki langt
undan.
Ótalin er sú auðlind sem felst í
samfélaginu og fólkinu sem í því
býr. Góðir skólar, traust félagsleg
þjónusta og öflug menningar- og æskulýðsstarfsemi verða
aldrei metin til fjár.
Listi
framtíðar leggur megin áherslu á eflingu atvinnulífs í sveitarfélaginu. Öflugt atvinnulíf er undirstaðan sem aðrir
þættir samfélagsins hvíla á. Grunnatvinnuvegur sveitarfélagsins er hefðbundinn
landbúnaður og ræður afkoma hans miklu um framtíð héraðsins. Ferðaþjónusta er vaxtarbroddurinn hér sem
annarsstaðar og þar finnast veruleg sóknarfæri fyrir héraðið. Ekki síst bindum
við vonir við uppbyggingu
ferðaþjónustu á Hveravöllum. Nýta þarf þau tækifæri sem í boði eru varðandi
nýsköpun í atvinnulífi og má í því sambandi nefna mögulega
atvinnustarfsemi á Húnavallasvæðinu, í
Dalsmynni og Húnaveri.
Traust
fjárhagsstjórn og skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins eru nauðsynlegir þættir
til að árangur náist. Ef fjárhagsleg
afkoma sveitarfélagsins leyfir þá verði leitast við að létta álögum á
íbúanna. Má í því sambandi nefna sérstaklega fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði.
Vel rekinn skóli og öflugt skólastarf er ein
af grunnstoðum hvers sveitarfélags. Húnavallaskóli og leikskólinn Vallaból eru og verða
þungamiðjan í sveitarfélaginu og þar muni unga kynslóðin stíga sín fyrstu spor á námsbrautinni.
Ástand
tengi-og héraðsvega í Húnavatnshreppi eru víðast algjörlega ófullnægjandi.
Tengivegirnir flestir slæmir malarvegir og héraðsvegirnir margir að breytast í
moldarslóða. Viðhald og endurbætur á vegakerfinu hefur verið í algjöru lágmarki
og verður verður ekki við svo unað mikið
lengur.
Fjarskipti
þ.e. sími, útvarp, sjónvarp og netsamband eru
nauðsynlegur þáttur í tilveru hvers manns. Enn er töluvert í land að
þessi mál séu í viðunandi horfi í
Húnavatnshreppi..Ástand vega og ekki síður fjarskiptamálin eru orðin hamlandi fyrir
eðlilegri byggðaþróun í sveitarfélaginu því verður það forgangsmál á næsta
kjörtímabili að ná fram úrbótum.
Við sem
að A-lista. Lista framtíðar í Húnavatnshreppi, stöndum höfum reynslu, metnað og
kraft til að fylgja fram baráttumálum listans og vonumst eftir góðum stuðningi í kosningunum
31. maí næstkomandi.
Þorleifur
Ingvarsson, Sólheimum
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |