Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:03 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:03 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:03 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:03 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:03 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:03 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Með grein sinni sem birt var á heimasíðu sveitarfélagsins Skagaströnd, lagði
sveitarstjórnarfulltrúi og frambjóðandi í komandi kosningum, fram hugmynd að
framboðsfundi. Sú hugmynd kann að virka eins og boð í hanaat á gamaldags máta
við fyrstu sýn, en er þó hið ágætasta boð. Boð sem Ð-listinn Við Öll fær um að
koma málefnum sínum á framfæri verður ekki hafnað úr hendi nema að mjög vel
athuguðu máli. Sú vinna sem lögð hefur í stefnumótun af hálfu þess sem
framboðinu standa verður að koma á framfæri með öðrum persónulegri hætti en
bara með orðum á blaði eða í slíku fundarformi.
Við Öll teljum
þó að ekki sé því best farið að sækja fram í einhverskonar sameiginlegu
fundarformi. Það er ekki andi íbúalýðræðis að búa til hringleikahús fyrir
fjöldann, við getum ekki treyst að yfirveguð umræða fari þar fram og því er
okkur einn kostur að afþakka boðið.
Í
Matteusarguðspjalli má finna fyrirsögn greinar þessar. Sú aðferð að nota
dæmisögur til að koma málstað sínum á framfæri er vel þekkt í gegnum
mannkynssöguna og gildir einu í dag hvort að vitnað er í guðspjöllin, dæmisögur
Esóps eða jafnvel þemu úr háðsglósum Nasreddins þá nema menn oftar betur
skilaboðin ef þeim er búinn umgjörð sem hefur mögulega skírskotun til
skemmtanagildis eða hreyfir við öðrum tilfinningum þess sem les.
Taka má því
þetta tilvitnað boð sveitarstjórnarfulltrúa um að mætast og ræða málin á opnum
fundi sem tilraun til að bera í bætifláka fyrir fyrri vinnubrögð. Gildishlaðin
fyrirsögnin er því með vilja sett fram sem svar við grein þeirri er vitnað er
til.
Rétt er að
reynsla fleytir manni áleiðis við ný verk en orð eru ódýr þegar kemur að því að
meta raunverulegan ávinning af verkunum. Reynslan er bara hluti af menginu sem
ræður útkomunni þegar dæmið er reiknað. Því ef reynslan byggir á röngum vinnubrögðum
er útkoman aldrei góð. Ef reynslan kemur líka í veg fyrir aðlögun að breyttu
umhverfi af því að reynslan á að ráða þá verður útkoman ennþá verri en ella.
Væri þá nær að taka upp ný verkfæri og endurskoða vinnubrögðin, því það er
óumdeilt að nýir vendir sópa betur.
Þegar hefur
Ð-listinn, Við Öll, sigrað í kosningum árið 2014 og þeim er ekki einu sinni lokið.
Þetta kann að virka hrokafull yfirlýsing en reyndin er að hún er sett fram af
meiri auðmýkt en hitt. Sigurinn er fólginn í því aðhaldi sem veitt er með
frjálsri umræðu um bæjarmál. Sigurinn er fólginn í því að veita bæjarbúum öllum
val um næstu 4 ár. Sigurinn er fólginn í því að vekja fólk til umhugsunar um
hvað hefur áorkast í fortíðinni og hvernig má búa í haginn fyrir framtíðina.
Því er vert að gæta
þess að áður en í gáttirnar er gengið sem kosningar eru vissulega, að skoða vel
næstu skref, skyggnast fyrir hornið og stíga gætilega til jarðar eins og 1.
erindi Gestaþáttar Hávamála býður.
Spurningin er
ekki hvað á ég að kjósa þegar að valinu er komið, heldur hverju get ég treyst.
Get ég treyst
því að loforð um aukið íbúalýðræði og virkari þáttöku bæjarbúa haldi þegar
reynsla mín sýnir annað af verkum sitjandi sveitarstjórnar?
Get ég treyst
því að næsta sveitarstjórn uppfylli öll lagaleg skilyrði sem sett eru um
sveitarstjórnir og bæti með því aðgengi mitt að upplýsingum?
Get ég treyst
því að óháð öllu verði teknar skynsamlegar ákvarðanir fyrir opnum tjöldum um
framtíð bæjarins og hlutleysis gætts í framkvæmdum bæjarins?
Get ég treyst
því að börnunum mínum eða barnabörnum verði veitt öll þau tækifæri til þroska
og menntunar sem veitast í nútímasamfélagi án þess að þau verði metin sem
kostnaðarliðir í ársskýrslum?
Svar Ð-listans
við þessum spurningum er það að þú kemst ekki að því fyrr en að á reynir. En
spurningin sem við spyrjum þig að er sú hver ávinningurinn er af því að sópa
áfram með þessum kústi?
Kristín Björk
Leifsdóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |