Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:45 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:45 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:45 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:45 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:45 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:45 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Forgangsröðun:
Það
tala margir þessa dagana um ferðamál og möguleika í þeim iðnaði. Uppi er óljós
umræða um hótelbyggingu á Skagaströnd. Ég er á þeirri skoðun að ef tekin verður
sú ákvörðun að byggja upp ferðamannaiðnað á Skagaströnd þá sé ekki endilega
víst að fyrsta verkið ætti að vera að byggja dýrt hótel. Þeirri skoðun deili ég
með ferðamálafrömuðum og ferðaskrifstofueigendum sem ég var með nú í apríllok.
Það er alveg hugsanlegt að t.d. stílfært mótel með íslensku ívafi væri mun
betri kostur. Þessi viðleitni er samt jákvæð svo langt sem hún nær. Það sem
hins vegar er ekki eins jákvætt eru þessi leyndarhyggju vinnubrögð. Ég er eins
og aðrir bæjarbúar, veit nánast ekkert um málið. Hvernig hótel er verið að tala
um tveggja stjörnu eða fimm stjörnu? Hvaða markhóp er verið að hugsa um? Hver á
að vera sérstaða hótelsins ef einhver? Á að fara í hugmyndasamkeppni eða bjóða
verkefnið út? Sveitarfélagið er ekki einkafyrirtæki fimm einstaklinga, það er
sameign okkar allra. Það erum VIÐ ÖLL sem skiptum máli.
Fyrstu skrefin:
Það
sem hins vegar þarf að byrja á er skipulagning afþreyingar í okkar næsta
nágrenni. Ég var, eins og ég sagði, með ferðaskrifstofueigendum frá Englandi í
viku tíma nú í vor. Ég tók á móti þessu fólk í Keflavík og skilaði þeim aftur
að viku liðinni. Ég var leiðsögumaður þeirra og eyddum við mestum tíma á
Norðurlandi vestra. Heilan dag notuðum við hér í ferð um Skagann. Það er ekki
vafi í mínum huga að uppbygging ferðamennsku á okkar svæði er vel
framkvæmanleg, en til þess þarf fagmennsku og vönduð vinnubrögð. Það verður að
byrja á réttum enda. Ég tel ráðlegt að ef sveitarfélagið tekur þessa ákvörðun
þá sé fyrsta verkið að ráða faglærðan starfsmann sem hefði þetta verkefni. Það
verður að móta stefnuna og það verður líka að skapa sér þau sambönd á markaði
sem eru nauðsynleg. Ferðamannamarkaðurinn á að ráða forgangsröðun. Þetta er
ekkert flóknara verkefni en hvað annað.
Norðurljós:
Ég
sé ekki ástæðu til að tíunda þá afþreyingarmöguleika sem í boði eru, það er af
nógu að taka. Mig langar þó að geta þess að næsta vetur mun ég leiðsegja, mér
til ánægju og nokkurs ávinnings, í Norðurljósaskoðun um Skagann.
Viðskiptavinirnir verða efnaðir Englendingar, sem koma með einkaþotum til
landsins.
Ferðaskrifstofa:
Þessi
iðnaður er þess eðlis að hann krefst samvinnu og samstarfs fólks af nokkuð
stóru svæði. Ég hefði talið að t.d. SSNV væri góður vettvangur til að leiða
svona mál. Það væri trúlega góður kostur að sveitarfélög á Norðurlandi vestra
stofnuðu ferðaskrifstofu, hvert sveitarfélag gæti svo haft einn starfsmann, sem
staðsettur væri í sveitarfélaginu. Svona landshluta ferðaskrifstofa, sem væri
rekin með þessum hætti, gæti unnið þá markaðsvinnu sem er forsenda árangurs.
Steindór Haraldsson
Skagaströnd
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |