Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ágæta samferðafólk. Ferðaþjónusta og jákvæðni er minn málflokkur. Ferðaþjónusta
er sú atvinnugrein sem mest hefur verið í sókn á landinu í heild sinni. Austur
Húnavatnsýsla hefur verið svolítið gleymd, en engu að síður mikill fjársjóður.
Við höfum hér fallega dali, vötn og heiðlendi mikil og stórar laxveiðiár. Svo
við tölum nú ekki um sögu, menningu og mannlíf hér í sýslunni.
Ég get ekki talað um ferðaþjónustu nema tala líka um
öll okkar setur og söfn. Um kirkjuna okkar sem fallegt listaverk og frábær
staður til bæna og tónlistaiðkunar. Hún er til fyrirmyndar því hvar er ekki guð
ef ekki á Blönduósi? Margir ferðamenn eru hrifnir af henni og er hún því líka
lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna.
Ferðaþjónusta er atvinnuskapandi. Hún er líka
vettvangur nýrra fyrirtækja. Hún er tækifæri sem við getum öll tekið þátt í.
Bærinn okkar Blönduós er þannig staðsettur við
þjóðveginn að margir sem leggja leið sína um þennan veg hafa aldrei komið inn í
bæinn okkar og vita því ekki hvað við höfum upp á að bjóða. N1 hefur verið
miðstöð ferðamannsins.
Við verðum að markaðssetja okkur við erum þjónustubær
við bændur og ferðamenn. Við þurfum að styrkja þessa þjónustu á allan hátt.
Kvennaskólinn, heimilisiðnaðarsafnið og Textílsetrið og
þær árlegu sýningar sem þar eru haldnar hafa notið mikilla vinsælda meðal
handverksfólks. Við þurfum að styrkja handverksfólkið okkar og koma vöru þeirra
á markaðinn.
Við eru hér með Sölufélag Austur Húnvetninga þar sem
mætti jafnvel bæta aðstöðu svo bændur í nágrannasveitum og jafnvel annarsstaðar
gætu unnið vöru sína og þannig komið að ferðaþjónustu með afurðir sínar undir
merkjunum beint frá býli sem hefur verið í stöðugri sókn á landsvísu.
Við höfum heilbrigðisstofnunina þar sem athugandi væri
að nýta til heilsutengdrar ferðaþjónustu.
Nýleg sund og íþróttaaðstaða er eining aðlaðandi fyrir
ferðmanninn og okkur heimamenn, virkilega stórt og flott mannvirki sem er
lyftistöng fyrir samfélagið.
Við höfum fjölbreytta gistiaðstöðu í bæjarfélaginu. Við
höfum sögu gamla bæjarins og mörg falleg hús sem gaman væri að sjá áfram. Nýtt
fuglahús og göngustíga sem auðvitað mætti bæta og fegra. Nálægðin við hafið er
verðmætt. Bryggjan er verðmæt fyrir okkur og ferðamennskuna. Gaman væri að sjá
þar bryggjumenningu blómstra.
En Róm var ekki byggð á einum degi. Umhverfið og
áhrifin sem þú verður fyrir skipta máli. Að konan í búðinni hafi frá einhverju
jákvæðu að segja. Skemmtileg saga er alltaf góð. Það sem ég vil segja með þessu
er að við skiptum öll máli. Hvernig við tölum um bæinn okkar og hvort annað
skiptir máli. Hvernig okkur líður skiptir máli. Að láta sér líða vel. Hvað
getum við gert í því? Bærinn okkar og sveitirnar hér í kring eru perlur sem við
getum verið stolt af. Líðan okkar skiptir ferðamanninn miklu máli þó hann tali
ekki beinlínis um það. Að koma þar sem vel er tekið á móti þér, allt er
þrifalegt og umhverfið snyrtilegt, metnaður í fólki og glaðværð, þar líður þér
vel og þangað viltu aftur koma. Við getum gert mikið meira til að laða ferðamanninn
til okkar. Með góðum kaffi og matsölustöðum, litlum einstökum verslunum og ýmsu
öðru áhugaverðu. Uppákomum líkt og
Húnavöku og fleiri viðburði gætum við einnig búið til.
Með bjartsýni og jákvæðu hugarfari erum við betri heim
að sækja, með trú á getu okkar og tilurð löðum við ferðamenn að og jafnvel
börnin okkar heim aftur. Við eru sérstök jafnvel einstök og við þurfum að
standa saman sem heild. Þannig erum við sterkari. Hvort sem við erum gömul eða
ung skiptir bærinn okkar máli. Hvað sem við gerum þá kjósum við. Með bestu þökk
fyrir lesturinn. Vona að ég hafi getað gefið þér innblástur og andagift!
Brynja Birgisdóttir skipar 8.sæti L listans.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |