Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 21. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:27 0 0°C
Laxárdalsh. 13:27 0 0°C
Vatnsskarð 13:27 0 0°C
Þverárfjall 13:27 0 0°C
Kjalarnes 13:27 0 0°C
Hafnarfjall 13:27 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 29. maí 2014 - kl. 15:50
Hvers vegna bauð ég mig fram?
Eftir Árnýju Sesselju Gísladóttur sem skipar 7. sæti H-listans á Skagaströnd

Þegar hugmynd um að bjóða mig fram undir merkjum Skagastrandarlistans kom upp  í kollinn á mér hugsaði ég málið í nokkra daga og ákvað í framhaldinu að henda mér út í djúpu laugina. Ég sé alls ekki eftir því. 

Frá því að ég var lítil hef ég litið á Skagaströnd sem mitt „heim“. Hér hef ég starfað síðan 2008 og búið síðan í byrjun árs 2012.  Eftir flutninginn hugsaði ég, af hverju var ég ekki löngu flutt hingað? Hér slær hjartað, hérna er mitt „heim“ og á Skagaströnd vil ég búa þar til ég er orðin gömul og grá. Til þess að það sé mögulegt þarf að tryggja atvinnuöryggi. Óöryggi í atvinnumálum er ekki aðlaðandi fyrir neinn og allra síst ungt fólk með börn. Við þurftum að leita leiða til styrkingar atvinnulífs hvort sem um er að ræða nýsköpun eða stuðning við núverandi atvinnurekendur.               

Mennta- og uppeldismál eru mér ofarlega í huga. Gæði þeirra eru alger forsenda fyrir því að samfélag eins og okkar dafni og sé aðlaðandi fyrir barnafjölskyldur. Við þurfum að tryggja að skóli og leikskóli  veiti bestu menntun sem völ er á. Jafnframt þarf aðbúnaður skólastarfs að vera til fyrirmyndar. Halda þarf áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á sl. árum en jafnframt er mikilvægt að stöðugt sé unnið að endurbótum á starfinu og umhverfi þess. 

Ég bauð mig fram til að geta lagt mitt lóð á vogarskálar samfélagsins. Ég vil gera enn betur og halda áfram að gera bæinn okkar betri. Ég er sannfærð um að gott má alltaf bæta.

H-listinn Skagastrandarlistinn leitar nú eftir umboði til að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum. Veitið okkur umboð til uppbyggingar og traust til að hlúa betur að samfélaginu okkar á komandi kjörtímabili. Stöndum saman í að gera samfélagið okkar enn betra.                                                                                        

Sjáumst sem flest hress og kát á kjörstað

X-H Árný Sesselja Gísladóttir

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið