Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nýtt afl – E-listinn hefur í kosningabaráttunni klifað á því að frá því að þau komust til valda hafi verið stunduð ábyrg fjármálastjórnun með þeirri niðurstöðu að góður árangur hefur náðst í fjármálastjórnun og þar til viðbótar hefur mannlíf í Húnavatnshreppi eflst mjög mikið. Þetta kemur m.a. fram í stefnubæklingi listans fyrir komandi kosningar. Mér er ómögulegt að skilja samhengið milli góðrar fjármálastjórnunar og eflingu mannlífs í hreppnum en látum það liggja milli hluta. Við lestur ársreikninga Húnavatnshrepps er erfitt að finna hvar góð fjármálastjórnun E-listans á sér stað. Taflan hér að neðan sýnir lykiltölur úr rekstri sveitarfélagsins frá 2008. Ársreikningarnir eru fengnir af heimasíðu hreppsins en þar er ekki hægt að finna tvo elstu reikninga Húnavatnshrepps.
Við lestur ársreikninga má glöggt sjá (sjá meðfylgjandi mynd) að tekjur sveitarfélagsins hefur skilað góðri rekstrarniðurstöðu þessi ár. Þetta á ekki síst við um tvö síðustu ár (2012 og 2013) þar sem útsvarstekjur taka kipp. Þetta er að vísu mjög ánægjulegt og sýnir að tekjur íbúa Húnavatnshrepps eru að aukast. Ómögulegt er að áætla flesta tekjupósta sveitarfélagsins enda mestur munur þar á milli áætlunar og rauntekna. Hægt er að ganga út frá einu sem vísu að þegar harðnar í ári þá minnkar fjármagn frá jöfnunarsjóði. Því verður ekki mætt öðruvísi en að lækka kostnað eins og mögulegt er og ég er viss um að ekki skiptir máli hver er í meirihluta sveitarfélags við slíkar aðstæður. Allir myndu fara þá leið. Annað sem vekur athygli og verður ekki útskýrt í fljótu bragði miðað við lykiltölur er hve launakostnaður er hár 2009 en þá var A-listinn við stjórn. Mér dettur í hug að á þessu ári hafi verið kennarar á biðlaunum, í fæðingarorlofi eða blöndu af þessu. Aðrar lykiltölur s.s. veltu-, eigin- og skuldahlutfall eru á svipuðu róli þessi ár.
Segja má að rekstur sveitarfélagsins hafi gengið vel öll þessi ár og líka þegar allt hrundi. Síðustu tvö ár hafa komið sérstaklega vel út en því er ekki að þakka ábyrgri fjármálastjórnun eingöngu heldur fyrst og fremst mun meiri tekjum heldur en gengið var út frá.
Látum vera með að skreyta okkur með stolnum fjöðrum.
Með vinsemd og virðingu
Gunnar Rúnar Kristjánsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |