Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 21. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:05 0 0°C
Laxárdalsh. 16:05 0 0°C
Vatnsskarð 16:05 0 0°C
Þverárfjall 16:05 0 0°C
Kjalarnes 16:05 0 0°C
Hafnarfjall 16:05 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 14. janúar 2015 - kl. 20:59
Ljósleiðari um allt land
Eftir Ásmund Einar Daðason

Í nýársávarpi forsætisráðherra var sagt frá því að á næsta ári ætti að hefja framkvæmdir við ljósleiðaravæðingu alls landsins en það var eitt af þeim stefnumálum sem Framsóknarflokkurinn lagði áherslu á í síðustu kosningum. Ljósleiðaravæðing alls landsins verður eitt stærsta framfaramál sem ráðist hefur verið í þegar kemur að styrkingu á innviðum og byggðum landsins.

Í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga var talsverð umræða um fjarskiptamál á landsbyggðinni. Framsóknarflokkurinn lagði þar höfuðáherslu á mikilvægi ljósleiðaravæðingar í dreifbýli. Í grein sem formaður, varaformaður og þingflokksformaður Framsóknarflokksins skrifuðu í aðdraganda síðustu kosninga sagði:

„Ríkisstjórnin ætti að hafa frumkvæði að því að kalla saman fjarskiptafyrirtækin og leggja áherslu á að nýta Fjarskiptasjóð í slíkt verkefni. Allir fjarskiptaaðilar geta veitt þjónustu á kerfinu. Mikilvægt er að allir landsmenn geti fengið jafna og góða þjónustu á sama verði. Fyrir þessu höfum við framsóknarmenn talað. Með samstarfi allra aðila ásamt sveitarfélögunum væri hægt að ljósleiðaravæða landið á nokkrum árum. Ný heildstæð byggðastefna er nauðsynleg. Framsóknarflokkurinn leggur mikla áherslu á að um hana ríki víðtæk sátt. Við erum fámenn þjóð í stóru landi. Eitt fyrsta skrefið ætti að vera ljósleiðaravæðing alls landsins.“

Frá myndun ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þá hefur verið unnið eftir þessari sýn.

300 milljónir til undirbúnings
Í byggðaáætlun 2014-2017 er sérstaklega fjallað um fjarskiptamál og þar er m.a. lögð áhersla á að vinnuhópur á vegum ríkisstjórnarinnar geri tillögur að fyrirkomulagi faglegs stuðnings við opinbera aðila sem koma að uppbyggingu ljósleiðarakerfa og annarra fjarskiptainnviða. Þessi vinna hefur verið í gangi undir forystu tveggja stjórnarþingmanna og nú á vorþingi er gert ráð fyrir nýrri fjarskiptaáætlun sem mun gera ráð fyrir ljósleiðaravæðingu alls landsins.

Alþingi samþykkti fyrir jól tillögu meirihluta fjárlaganefndar um að veitt verði 300 milljónum til þess að styðja við fyrirhugaða fjarskiptaáætlun og hefja fyrsta áfanga framkvæmda við fyrirhugaða ljósleiðaravæðingu. Þessum fjármunum á að verja í fyrsta áfanga fjarskiptaáætlunar. Áætlunar sem á að setja fram töluleg markmið um ljósleiðaravæðingu og uppbyggingu annarra fjarskipta á næstu árum. Með fjárveitingunni verður hægt að skipuleggja og kortleggja innviðagrunni ljósleiðara, hefja tengingar á ótengdum svæðum auk þess að hringtengja landsvæði o.fl.

Þetta fyrsta skref sýnir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ætlar sér að stíga stórt skref í áttina að því að jafna búsetuskilyrði fólks í dreifbýli og þéttbýli. Það er mikilvægt að allir sitji við sama borð þegar kemur að fjarskiptum og ljósleiðaravæðing gegnir þar lykilhlutverki. Það var ánægjulegt, sem fjárlaganefndarmaður, að taka þátt í því að leggja til að við Alþingi að veita fjármunum til þessa verkefnis. Samþykkt Alþingis á þessari fjárveitingu er skýr staðfesting á því að Framsóknarflokkurinn mun líkt og bent var á fyrir síðustu kosningar beita sér fyrir stórefldum fjarskiptum á þessu kjörtímabili.

Ásmundur Einar Daðason
Alþingismaður og nefndarmaður í Fjárlaganefnd

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið