Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 21. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:45 0 0°C
Laxárdalsh. 12:45 0 0°C
Vatnsskarð 12:45 0 0°C
Þverárfjall 12:45 0 0°C
Kjalarnes 12:45 0 0°C
Hafnarfjall 12:45 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 05. febrúar 2015 - kl. 11:25
Hvers virði er Ísland?
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Náttúrupassi hefur mikið verið í umræðunni undanfarið og frumvarp þar að lútandi hefur nú litið dagsins ljós. Það eru vonandi allir sammála um að stórauknu fjármagni verður að verja til uppbygginga innviða ferðamannastaða annars stefnir allt í óefni og náttúra landsins hlýtur mikinn skaða af.

Það er jú vegna náttúrunnar sem stærstur hluti ferðamanna sækir Ísland heim og nýtur þess að ferðast um og skoða fjölbreytta flóru landsins og náttúruperlur.

Í dag höfum við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og lög um gistináttagjald. Sjóðurinn er í dag fjársveltur og getur ekki sinnt því hlutverki sínu að vernda og byggja upp þau svæði landsins sem viðkvæm eru fyrir mikilli umferð ferðamanna og eru mörg hver í mikilli niðurníðslu. Enn fremur á sjóðurinn að sinna því hlutverki að byggja upp nýja áfangastaði svo dreifa megi álaginu af auknum fjölda ferðamanna betur um allt land. Þjóðgarðar og friðlýst svæði fá í dag hluta af gistináttagjaldinu en í tillögum um náttúrupassa er ekki gert ráð fyrir því að tekjur af honum renni til þessara svæða.

Samtök ferðaþjónustunnar hafa varað mjög við hugmyndum um náttúrupassa, telja að hann skaði ímynd landsins og verði ill framkvæmanlegur og vilja þess í stað efla gistináttagjaldið. Ég tek undir það og tel rétt að styrkja þann tekjustofn sem við höfum í gistináttagjaldinu og skoða möguleika á að leggja komugjald á flugfarseðla yfir háannatímann og fara þannig blandaða leið almennrar skattheimtu.

Það að landsmenn þurfi að kaupa sér náttúrupassa til þess að ferðast um sitt eigið land stríðir gegn almannarétti og gerir ekkert annað en hefta aðgengi þjóðfélagshópa að náttúru landsins og mismuna þannig fólki eftir efnahag. Málum hefur verið stillt þannig upp í umræðunni að ef ekki komi til náttúrupassi þá sé voðinn vís og náttúran drabbist niður og engin önnur tekjuöflun sé möguleg.

Þannig er það ekki og það má ekki dragast að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða verði fjármagnaður þannig að hægt sé að mæta því að hingað komi milljón ferðamenn á ári eins og stefnir í fljótlega.

Burðarþol landsins þolir ekki slíka ágengni til lengdar og ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega í sjálfbærri ferðaþjónustu sem laðar að gesti til þess að njóta óspilltrar náttúru og fjölda náttúruminja um allt land þá verðum við að bretta upp ermarnar og ekki seinna en strax!

Það gengur ekki að einkaaðilar fari að selja inn á sín afmörkuðu svæði og við önnur svæði verði sett upp söluhlið þar sem sýna þarf náttúrupassa. Þessi ásýnd landsins fyrir ferðamenn er fráhrindandi og óaðlaðandi og mun fljótt skila sér í neikvæðri umræðu um landið sem hefur fengið þá ímynd eftir mikla markaðssetningu að vera í hópi þeirra landa sem skarta fjölbreyttri náttúrufegurð og þar sem fjölbreytni er höfð í hávegum. Það er auðvelt að eyðileggja árangur áratuga vinnu við markaðssetningu í ferðamálum með illa ígrunduðum tillögum um náttúrupassa sem þingmenn úr öllum flokkum hafa gagnrýnt undanfarið ásamt félagasamtökum og almenningi í landinu.

Við megum því engan tíma missa. Ekki einingis vegna ótta við að ferðamönnum til landsins fækki heldur vegna þess að við erum vörslumenn náttúrunnar og það eru takmörk fyrir því hve Ísland þolir mikla ágengni ferðafólks á viðkvæmt vistkerfi landsins.

Þess vegna spyr ég: „Hvers virði er Ísland“ þegar náttúra landsins er annars vegar og fjármagna þarf viðhald hennar ,uppbyggingu innviða og umhirðu ferðamannastaða. Mitt svar er að það sé fjársjóður hverrar þjóðar að varðveita sem best náttúruna og við höfum til þess verkfæri í dag sem er gistináttagjaldið sem má útfæra betur í bland við komugjald á flugfarseðla.

Við skulum því ekki eyða orku í vondar tillögur um náttúrupassa. Málið þolir ekki bið og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða verður að fá fjármagn strax til að rísa undir verkefnum sínum þar til lög um fjármögnun hans verða að veruleika.

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið