Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:27 0 0°C
Laxárdalsh. 19:27 0 0°C
Vatnsskarð 19:27 0 0°C
Þverárfjall 19:27 0 0°C
Kjalarnes 19:27 0 0°C
Hafnarfjall 19:27 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Blönduóskirkja
Blönduóskirkja
Pistlar | 08. maí 2015 - kl. 23:12
Organistapistill - Sól af hafi rís
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

„Straumur tímans hremmir okkur“ segir skáldið úr Langadal og pistilhöfundur hefur einmitt haft svipuð kynni af þessum lítt sýnilega fararstjóra. Seinni vetri hans við orgelið í Blönduóskirkju er að ljúka og hann hefur notið þess að spila á glæsihljóðfæri í hljómmiklum sal, kynnast úrvalsfólki, sumu í kórnum, öðru í heitu pottunum hjá Róbert eða í strætóbið um hádegi í Skálanum –  N1, taka þátt í síðdegiskaffinu í félagsheimilinu á Hnitbjörgum, rifjað upp unglingadeildina, 2. bekkinn 1960 hjá þeim Stefáni og Þorsteini Matt., þar sem hæglátir sveitastrákar af Ásunum blönduðust grónum Blönduósingum, flestir á leið í landspróf sem mörg okkar tóku veturinn eftir: Þeir Héddi, Feri, Gummi, Dúddi, Jónar tveir, Ragnar og Jói, einarður vísnasmiður og námskappi var Kalli í Helgafelli, Magga, Ása, Inga Jóna og Eygló. Já og Unnar og Lúlli.

Seinni part vetrar 2015 fékk pistilhöfundur hlutverk við þennan sama skóla, sem nú heitir Blönduskóli, hann varð lesafi við 4. bekk, hampaði þar Skólaljóðunum, þeim bláu, gömlu og góðu og reyndi að beina ungu augunum út á blámann á flóanum sem smáhorn sést af út um gluggann á ganginum. 

En það er ekki bara flóinn og Strandafjöllin sem taka móti ferðalöngum eða heimamönnum sem koma sunnan yfir heiði. Víðidalsfjallið með tígulegan Ásmundarnúp, Öxlin og Spákonufellsborg koma í sjónmál farþeganna þegar nær dregur, eru hvít eina vikuna, flekkótt eða dökk aðra meðan strætóinn blái brunar hjá og stansar ekki fyrr en hjá Skálanum við Blönduós.

En lítum aðeins við í Bragaheimi: Guðmundur Frímann skáld á Akureyri var bróðir Hilmars á Fremstagili og Bjarna á Efrimýrum og föðurbróðir Valgarðs, forseta bæjarstjórnar Blönduóss. Þessir bræður fæddust og ólust upp í Hvammi í Langadal og Guðmundur Frímann kemur vestur í Langadalinn í mörgum ljóða sinna eins og í kveðju sinni til árdalsins sem hann lýkur með því að minnast foreldra sinna:

Þau ólu upp í koti nokkra stóra, sterka sonu er straumur tímans hremmdi, – eg var einn af þeim. http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?U=s0&ID=4609 

Guðm. yrkir líka um fegurð hnjúkanna í kringum Hvamm:

Og gleymdu ekki tröllunum, vættunum og vofum, 
sem voru forðum daga í gilinu við Hvamm; – 
og huldufólki því, sem býr í myrkum Móbergs-stofum 
það minnist kannski drengsins sem starði þangað fram.

Mig langar líka að deila með lesurum þessa pistils hugrenningum vegna afmælis karlakórsins og birtist í afmælisskránni þeirra í Húnaveri síðasta vetrardag:

Þankar við tímamót
Ávarp í afmælisriti Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps 90 ára

Er eitthvað magnaðra en að tengja! Tengjast með söng og ljóðum, með bréfaskiptum, fésbók, símboðum eða ganga til liðs við eitthvert félag. Kórstarfið lyftir andanum, þjálfar róminn, skýrir framsögnina, gefur draumum rúm og huganum útþrá.

Gamli karlakórinn er mikils virði okkur sem dreymir um að glæða menninguna heima í dalnum. Þar hefur margur sveitunga okkar staðið á palli þó síðan hafi horfið til annarra staða og annarra kóra en á og geymir sína sögu um árin í kórnum.

Sögur Guðmundar Halldórssonar frá Bergsstöðum eiga rætur í kórnum. Eyvindarstaðabræður, þeir Gísli og Þorsteinn, Jónas Tryggvason og Gestur Guðmundsson sömdu lög sín og ljóð fyrir kórinn. Þeir Jónas, sr. Gunnar Árnason og Guðmundur Jósafatsson spöruðu ekki tíma til að skrá sögu kórsins og nú á síðustu áratugum hefur Guðmundur Valtýsson haldið skráningunni áfram.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps skartar félögum á stóru aldursbili og dugmiklum og hæfum söngstjóra úr næstu sveit sem kom til liðs á ögurstundu. Hann og kórinn hafa eflt hvor annan og sérstaklega hefur kórinn magnast nú á síðustu misserum í samstarfi við Rögnvald Valbergsson organista og útsetjara á Sauðárkróki, sem útsetti í fyrravetur lög Geirmundar Valtýssonar fyrir karlakór og hljómsveit en lög Ellýjar og Vilhjálms nú í vetur sem kórinn hefur hlotið fyrir bæði lof og góða aðsókn áheyrenda. Ásamt Rögnvaldi skipa hljómsveitina tónlistarkennarar á Blönduósi og nemendur þeirra og eiga góðan þátt í velgengi kórsins.

Tónskáldið og söngstjórinn Jónas Tryggvason segir í litlu ljóði:

Nú vildi ég gefa gull mitt allt
að gjaldi í kvæðis stað.
Mér finnst ég hafi aldrei ort
neitt annað ljóð en það.

Já, hvað er draumur og hvað er vaka? Svari hver sem kann en kórinn þarf ekki að svara því. Hann heldur áfram að syngja undir hnjúknum – og fyrir heiminn.

Að tigna sönggyðjuna er eftirsóknarvert en tekst einungis þeim sem þekkir auðmýktina en hafnar hrokanum. IHJ

Söngstjóraannáll:
1924 sunnud. 28. des hittust á Norðurloftinu í Bólstaðarhlíð nokkrir söngfélagar og ákváðu að stofna karlakór
1925 vor  Gísli Jónsson Eyvindarstöðum
1925-29  Þorsteinn Jónsson Gili
1929-36  Gísli Jónsson
1936-39  Þorsteinn Jónsson
1939-41  Gísli Pálmason Bergsstöðum
1941-45  Þorsteinn Jónsson
1945-52  Jónas Tryggvason Finnstungu og Ártúnum
1952-87  Jón Tryggvason Ártúnum
1987-93  Gestur Guðmundsson Blönduósi
1993-15  Sveinn Árnason Víðimel

Aðeins meiri Braga: Þó langt sé síðan Guðm. Böðvarsson á Kirkjubóli í Hvítársíðu orti um sól á norðurslóð og rekavið á Ströndum er örstutt síðan vefsýslumaður fann þetta innblásna ljóð og kom því inn á Húnaflóa – vísnasíðu, 9 mánaða gamla. Þar eiga heima vísur og ljóð sem tengjast héruðunum við flóann bláa:

Það verður hvorki sagt né sett í ljóð
er sól af hafi rís á norðurslóð,
að þeirri sýn þú síðan alltaf býrð,
þar sást þú guð þíns lands í sinni dýrð;
og þangbrún fjaran undir hömrum hám,
með hvítan, fallinn skóg af sœvartrjám,
hóf huldusönginn, ofar allri sögn,
við undirleik frá hinni miklu þögn. Guðmundur Böðvarsson     
http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=4591

Góðan gest og prest fáum við í predikunarstól kirkjunnar á uppstigningardegi 14. maí kl. 15. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, fyrrum prestur Flóamanna og Súgfirðinga og kunnasti leikari meðal íslenskra presta, mun stíga í stólinn og flytja sína ræðu.http://is.wikipedia.org/wiki/Kristinn_%C3%81g%C3%BAst_Fri%C3%B0finnsson

Velkominn vertu til guðshúss lesari góður! 

 

 

 

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið