Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 3. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:11 0 0°C
Laxárdalsh. 05:11 0 0°C
Vatnsskarð 05:11 0 0°C
Þverárfjall 05:11 0 0°C
Kjalarnes 05:11 0 0°C
Hafnarfjall 05:11 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 01. september 2016 - kl. 11:54
Aldrei fór ég norður
Eftir Hafdísi Gunnarsdóttur

Hugtakið út á landi gætur bæði verið ógurlega krúttlegt í huga fólks en jafnframt eins og versta klúryrði. Þegar fólk talar um að fara í sæta sumarhúsið sitt út á landi, fallega einbýlishúsið sem staðsett er á besta stað í miðbæ Patreksfjarðar þá er hugtakið ógurlega krúttlegt. En þegar umræðuefni snýst um að hafa stofnun eða þjónustu á vegum ríkisins staðsetta út á landi verða margir eins og andsettnir og hreinlega tjúllast.

Gott dæmi er lögreglunámið sem loksins er komið á háskólastig, sem valdið hefur talsverðu fjaðrafoki. Höfum eitt á hreinu áður en við höldum lengra. Það er ekki verið að færa námið frá höfuðborgarsvæðinu og út á land, því námið er nýtt af nálinni. Lögregluskólinn hefur verið lagður niður og ákveðið var að nýja háskólanámið yrði kennt í Háskólanum á Akureyri. Auðvitað hefði það verið mikil búbót fyrir NV-kjördæmi að fá námið kennt í Háskólanum  Bifröst, en það er mikið fagnaðarefni að námið verði kennt á Akureyri. Út á landi! Það sýnir að enn eru til stjórnmálamenn með einhverja byggðahugsjón. Háskólinn á Akureyri kennir háskólanám m.a. í fjarnámi og get ég vottað að það gerir skólinn með sóma. Háskóli Íslands gæti lært ýmislegt af bæði Háskólanum á Akureyri og háskólanum á Bifröst, þegar kemur að fjarnámi en það er efni í aðra grein.

Það fögnuðu samt ekki allir þessari ákvörðun menntamálaráðherra. Ó nei, svo aldeilis ekki. Ein af þeim var þingmaðurinn Valgerður Bjarnadóttir sem vildi fá námið kennt í Háskóla Íslands. Af því að mesta þörfin fyrir lögreglumenn er á suðvesturhorninu og þar byggju flestir sem vildu fara í námið. Hún spáði því að það kæmi aðeins ein umsókn til Háskólans á Akureyri um nám í lögreglufræðum. Hér er hins vegar staðan eins og hún er í dag: Rúmlega áttatíu manns hafa sótt um námið. Þó það sé kennt út á landi! Ekki nóg með það heldur er vissulega þörf fyrir lögreglumenn út á landi líka. Af hverju talar fólk með þessu hætti sem Valgerður gerir? Er ekki rétt að gera kröfur til hennar sem alþingismanns um að sjá heildarmyndina? Stundum hef ég það á tilfinningunni að byggðaþróun sé bara eitt af þessum krúttlegu orðum sem notuð eru við hátíðleg tilefni, en svo er engin meining á bak við það. Málið snýst um að halda landinu í byggð eða einblína á suðvesturhornið.

Ef ekki er hægt að staðsetja nýtt háskólanám á landsbyggðinni þá getum við aldrei staðsett neitt frá ríkinu út á landi. Og ef það er virkilega stefnan þá vil ég frekar að fólk sé heiðarlegt og segi það. Þá getum við alveg eins lokað Reykjavíkurflugvelli. Vá, þá yrðu nú sumir ánægðir. Þessari anti-byggðarhugsjón fólks þarf að breyta. Það er heldur engin lausn á byggðavandanum að dreifa byggðakvóta, eins og oft er lagt til. Við þurfum störf við hæfi svo menntað fólk sjái hag sinn í að snúa aftur heim.

Í dag er að byggjast upp öflug atvinnugrein á Vestfjörðum, laxeldið, sem mun hafa mikil áhrif á byggðaþróun á svæðinu. Mikil tækifæri munu skapast, ekki bara við eldið og vinnslu á laxi, heldur alls kyns tengdar atvinnugreinar og þjónustu við starfsemina. Mikilvægt er í fjórðungunum að sú þjónusta byggist upp í nálægð við starfsemina, enda mikið af eftirsóknarverðum störfum sem hún kallar á. Eitt öflugasta eldisfyrirtækið, Arnarlax, hefur t.d. sett sér starfsmannastefnu um að allir starfsmenn séu búsettir á svæðinu og greiði skatta og skyldur til nærsamfélagsins. Þetta er grundvallaratriði en ef til vill er Valgerður sannfærð um að betra sé að staðsetja stjórnunarstörf á suðvesturhorninu, og flókin eftirlitsiðnaður hins opinbera séu einmitt staðsettir þar?

En þetta eru ekki náttúrulögmál og til að þessi uppbygging hafi jákvæð áhrif á byggðaþróun Vestfjarða, sem hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi, þurfa stjórnunarstörf að leggjast til á svæðinu. Hið opinbera á síðan að byggja upp stuðningsgreinar og eftirlit og gefa þannig ungu fólki sem hefur lokið við háskólanám að sækja framtíðarstarf á heimaslóðum.

Hafdís Gunnarsdóttir

Höfundur sækist eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið