Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:45 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:45 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:45 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:45 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:45 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:45 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í könnun sem Gallup gerði fyrir ríkisútvarpið í sept. 2013 kom í ljós að 73 prósent Reykvíkinga vilja hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýri. Heildarstuðningur þjóðarinnar við flugvöllinn í Reykjavík var 82 prósent.
Lítil ástæða er til að ætla að þessi afstaða þjóðarinnar hafi breyst. Því er það alveg óskiljanlegt að ennþá og stöðugt þurfi að takast á um þetta mikla hagsmuna og öryggismál þjóðarinnar sem flugvöllur í höfuðborg allra landsmanna er.
Ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur um lokun neyðarbrautarflugvallarins í Vatnsmýrinni hefur verið mótmælt víða og sérstaklega af íbúum landsbyggðarinnar sem búa við takamarkaðri þjónustu í heimabyggð en áður og stóraukinn ferðamannafjölda sem krefst læknis og sjúkraþjónustu.
Nú síðast sendi Sveitarstjórn Húnavatnshrepps frá sér ályktun og „átelur harðlega lokun suð-vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar sem kölluð er neyðarbraut. Áréttað er að Reykjavík sé höfuðborg landsins, og „sýni mikið metnaðar- og ábyrgðarleysi gagnvart landsbyggðarfólki í neyðartilfellum sjúkraflugs með lokun brautarinnar“.
Bent hefur verið ítrekað á að lending á neyðarbrautinni svokölluðu, sem er NA/SV flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli, hafi skipt sköpum varðandi sjúkraflug utan af landi og oft í erfiðum tilfellum þar sem um líf og dauða sé að tefla.
Með því að draga saman læknisþjónustu á landsbyggðinni eykst álagið á sjúkraflutninga bæði með sjúkrabílum og sjúkraflugi. Æ stærri hluti læknisþjónustu og bráðaviðbragða hefur verið þjappað saman á Landspítalanum í Reykjavík. Meginhluti opinberar þjónustu og stjórnsýslu er í Reykjavík. Hins vegar er verð á fargjöldum í innanlandsflugi allt of hátt og mikilvægt að stjórnvöld endurskoði hlut sinn í kostnaði við þær almenningsamgöngur sem flugið er.
Greiðar, öruggar og hraðar flugsamgöngur milli höfuðborgar og landsbyggðar skipta miklu máli í að jafna aðstöðumun fólks eftir búsetu í landinu.
Bjarni Jónsson
Býð mig fram til að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |