Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:49 0 0°C
Laxárdalsh. 23:49 0 0°C
Vatnsskarð 23:49 0 0°C
Þverárfjall 23:49 0 0°C
Kjalarnes 23:49 0 0°C
Hafnarfjall 23:49 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 25. október 2017 - kl. 09:48
Hjartað á réttum stað
Eftir Guðjón S. Brjánsson

Íslendingar ganga til kosninga um helgina eftir skammlífa ríkisstjórn sem starfaði í skugga spilltrar stjórnmálamenningar. Upplýsingum er haldið frá almenningi, ójöfnuður fer hratt vaxandi. Hagsmunir hinna ríku ráða för en almannahagsmunir að engu hafðir.     

Fátæktargildrur

Þrátt fyrir efnahagslegan uppgang þurfa margir í röðum öryrkja, eldri borgara, sjúklinga og barnafólks að óttast um afkomu sínu um hver mánaðamót. Láglaunafólk og leigjendur eru fastir í fátæktargildru með þeim afleiðingum að mörg börn búa við fátækt og skort. Ungt fólk kemst ekki úr foreldrahúsum. Næsta ríkisstjórn verður að taka afgerandi skref til þess að bæta kjör þessa fólks.

Okkar ásetningur er að verulega stuðning við barnafjölskyldur með tvöfalt hærri barnabótum og auknum húsnæðisstuðningi. Við ætlum að stuðla að byggingu þúsunda leiguíbúða á vegum félaga sem starfa án hagnaðarsjónarmiða.  Við ætlum að færa skattabyrði frá milli- og lágtekjufólki til þeirra sem hana geta borið.  Við viljum tryggja að þjóðin fái réttlátan arð af sameiginlegum auðlindum og við leggjum höfuðáherslu á að bæta  lífsgæði aldraðra og öryrkja, hækka lífeyri og draga verulega úr tekjuskerðingu lífeyris.

Reisum flaggið

Stórauknum framlögum var lofað til heilbrigðisþjónustu, vegagerðar og löggæslu í síðustu kosningabaráttu. Um 86 þúsund manns skrifuðu undir áskorun um að endurreisa heilbrigðiskerfið. Fráfarandi stjórnarflokkar lofuðu að setja þessi mál í algjöran forgang en ekkert hefur verið gert með þennan vilja þjóðarinnar. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er þjónusta við sjúklinga á spítölum skorin niður en útgjöld aukast vegna starfsemi einkafyrirtækja.

Við höfnum einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og leggjum alla áherslu á að bæta heilbrigðisþjónustu í opinberri eigu.  Við ætlum að draga verulega úr  heilbrigðiskostnaði fólks, ekki síst fjölskyldna á landsbyggðinni og auðvelda aðgengi að sálfræðiþjónustu. Við munum ráðast í átak í geðheilbrigðismálum og heilsueflingu almennt.

Lykill að framtíðinni

Menntun er lykillinn að aukinni verðmætasköpun og betri lífskjörum. Við stöndum á þröskuldi tæknibyltingar þar sem starfshættir eiga eftir að gjörbreytast. Miklar breytingar verða á vinnumarkaði og skólarnir  þurfa að búa nemendur undir þær með því að leggja áherslu á grunnþætti á borð við félagsfærni, sköpun og gagnrýna hugsun.

Við viljum gefa nemendum tækifæri til þess að þroska hæfileika sína í skapandi greinum, listum, rannsóknum og nýsköpun til að mæta nýjum áskorunum í lífi og starfi.  Við leggjum áherslu á að auka virðingu fyrir kennarastarfinu, hvort sem er á leikskólastigi eða framhaldsskólastigi. Við leggjum áherslu á að fjármagna háskólana sómasamlega og við munum styðja betur við fjölbreytta framhaldsskóla, ekki síst verknámsbrautir og vinna gegn brottfalli nemenda með markvissum aðgerðum.

Mannúð

Við höfum kynnt átak gegn ofbeldi, hvort sem það er af kynbundnum toga eða því beitt með öðrum hætti í samfélaginu.  Við viljum líka sýna flóttafólki mannúð og taka aukinn þátt í þessu fjölþjóðlega viðfangsefni og vanda móttöku hælisleitenda, sérstaklega barna.

Bætum lífsgæði – treystum byggðir

Við viljum stórauka fjárfestingu í vegagerð með fjármögnun samgönguáætlunar og hrinda í framkvæmd kröftugri byggðastefnu.  Við þurfum að taka markviss skref til þess að standa við skuldbindingar okkar í baráttunni gegn hlýnun jarðar og súrnun sjávar.  Nauðsynlegt er að flýta orkuskiptum í samgöngum með skipulagi og hleðslustöðvum um allt land.

Hverjum er treystandi?
Traust er einn mikilvægasti þáttur stjórnmálanna. Til að vinna sér traust meðal þjóðarinnar verða alþingismenn að treysta þjóðinni sem gaf þeim umboð, hlusta á hana og virða. Við óttumst ekki afstöðu þjóðarinnar, hvorki í stjórnarskrármálum né Evrópumálum.  Við ætlum að vinna af krafti á nýju kjörtímabili að nýrri stjórnarskrá á grunni vandaðrar vinnu stjórnlagaráðs.

Hjartað á réttum stað

Við fáum að nota okkar dýrmæta lýðræðislega rétt eftir fáa daga í kosningum til Alþingis.  Baráttumál okkar jafnaðarmanna eru enn á sömu lund, vörn og sókn fyrir venjulegt fólk en ekki þrönga sérhagsmuni.   Er ekki tækifærið einmitt núna, að taka nýja ákvörðun, ferska og djarfa – já, og láta hjartað ráða för.

​Guðjón S. Brjánsson

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið